Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Áfram áfram

Þegar Valgerður, Guðni og Siv standa frammi fyrir því að þurfa að velja milli áframhaldandi stjórnarsamstafs eða stjórnarandstöðu þá er ekki spurning hvað verður fyrir valinu. Það er of mikið stökk frá því að hafa verði ráðherrar í mörg ár í það að þurfa að opna póstinn sinn sjálfur og keyra sér sjálfur milli staða. Það er of erfitt. Þau munu fara í stjórn með Sjöllum

þrátt fyrir allkonars yfirlýsingar um vilja kjósenda og bla bla bla þá verða það þessi persónulegu hagsmunamál sem vega þyngst.

 


Af hverju

gekk Jónína Bjartmarz um bæinn á föstudag og hélt því fram að árás Jóhannesar Jónssonar á Björn Bjarnason hafi verið samþykkt af áhrifamönnum í Sjálfstæðisflokknum?

Það er tvennt sem kemur til greina:

  1. Jónína sagði ósatt og ætti að biðja Björn og Sjálfstæðisflokkinn afsökunar.
  2. Jónína sagði satt og þá þarf að upplýsa hvaða menn standa í svoleiðis svikráðum.

Það væri gaman ef einhver hringdi í Jónínu og spyrði hana hvað hún hefði fyrir sér varðandi þetta mál.


Umdeildar embættisveitingar?

Ég hóf að setja saman neðangreind orð af öðru tilefni, en auglýsingar vænisjúks auðmanns sem vill kaupa sér ákveðna niðurstöðu í kosningum setja þessi orð í annað ljós. Í öllum blöðum er auglýst og fólk hvatt til að strika yfir Björn Bjarnason (Mér þætti reyndar vænt um að kjósendur Samfylkingarinnar gerðu sem mest af því) Í auglýsingunni er eftirfarandi haldið fram:

Embættisveitingar Björns hafa verið harðlega gagnrýndar á undanförnum árum.

En hvaða embættisveitingar eru það?

Loggasluaatlun
Á vef dómsmálaráðuneytisins var í gær birt myndin sem er hér að ofan, hún er af ráðherra með lögreglustjórum landsins og nokkrum embættismönnum.  Á myndinni eru 5 konur í karlaskara og það rann upp fyrir mér að 4 þeirra voru skipaðar eða veitt stöðuhækkun af Birni en einungis tveir åf körlunum 14, hinir tólf voru skipaðir í stöðu sínar fyrir tíð Björns. Ég fór að velta því fyrir mér hvernig er með aðrar skipanir því ég man úr störfum mínum í ráðuneytinu að þegar hann tók við embætti var hlutfall kvenna í nefndum á vegum ráðuneytisins rétt rúm 25%, 3 árum síðar var hlutfallið komið í tæp 40% ef ég man rétt.  

Eins og ég minntist á að ofan þá hefur hann skipað konur í embætti ef maður rennir yfir vef dómsmálaráðuneytisins finnur maður eftirfarandi:

Í dómsmálaráðherratíð sinni hefur Björn skipað 4 sýslumenn, 3 konur 1 karl.

  • Kristín Völundardóttir skipuð sýslumaður í Hólmavík og síðar á Ísafirði
  • Ásdísi Ármannsdóttur sýslumaður á Siglufirði
  • Láru Huld Guðjónsdóttur sýslumaður á Hólmavík.
  • Guðgeir Eyjólfsson sýslumaður í Keflavík

Hann hefur skipað 8 héraðsdómara 4 konur og 4 karla.

  • Sigrún Guðmundsdóttur skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
  • Ragnheiði Bragadóttur héraðsdómari við héraðsdóm Austurlands.
  • Ástríði Grímsdóttur héraðsdómari við héraðsdóm Suðurlands
  • Arnfríði Einarsdóttur héraðsdómari við héraðsdóm Reykjaness
  • Ásgeir Magnússon héraðsdómari án fasts aðseturs
  • Skúla Magnússon héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
  • Símon Sigvaldason skipaður héraðsdómari án fasts aðseturs
  • Ingimund Einarsson héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur

Skipan saksóknara er þannig:

  • Ragnheiði Harðardóttur skipuð í embætti vararíkissaksóknara
  • Kolbrúnu Sævarsdóttur í embætti saksóknara hjá ríkissaksóknara
  • Helga Magnús Gunnarsson í embætti saksóknara hjá ríkissaksóknara
  • Sigríði Elsu Kjartansdóttur í embætti saksóknara hjá ríkissaksóknara

Aðrar skipanir:

  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir skipuð aðstoðarríkislögreglustjóri
  • Hildur Dungal skipuð forstjóri Útlendingastofnunar
  • Stefán Eiríksson í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins (engin kona sótti um)
  • Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu (engin kona sótti um)
  • Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari

Þá hefur Björn  valið sér 4 aðstoðarmenn í ráðherratíð sinni í menntamálaráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu, 2 konur og 2 karla.

Margir stjórnmálamenn tala og tala um hlutina, munurinn á þeim og Birni er að hann framkvæmir.

Auglýsingar auðmannsins gefa í skyn að eitthvað óeðlilegt sé með embættisveitingar dómsmálaráðherra, Pétur Gunnarsson segist hafa skömm á aðferðum Björns, af öllum þessum embættisveitingum þá hefur skipan Ólafs Barkar ein ollið úlfaþyt, en hver er tilbúinn nú til að segja að hann eigi ekki heima í Hæstarétti. Af öllum þessum embættisveitingum að hverri þeirra var þannig staðið að skömm væri að? 

Yngri dóttir mín vaknaði áðan og þar sem ég var að sinna henni áttaði ég mig á því að ég væri að sýsla með það sama og Jóhannes Jónsson ber á borð fyrir íslenska kjósendur í dag - mannlegan úrgang.


Nýjir þingmenn

Þegar maður raðar öllum könnunum síðustu daga upp hlið við hlið þá kemur áhugavert mynstur í ljós. Ég held að Sjálfstæðiflokkurinn fá aðeins minna en meðaltalið en Framsókn meira og stjórnin haldi með 33-34 þingmönnum.

Dagsetningarnar eru birtingadagsetningar en segja ekki til um hvenær þær voru gerðar. Þær voru allar gerðar í vikunni. En það eru nokkrar vísbendingar sem maður sér líka þegar maður skoðar hvert kjördæmi. Sjálfstæðisflokkurinn er að fara að vinna stórsigur í Suðurkjördæmi miðað við síðustu kosningar. VG er með góða stöðu í Reykjavík norður, svo góða að Paul Nikolov er inni í samantektinni minni. Hinsvegar líta kannanirnar ekki eins vel út í kjördæmi formannsins og Þuríður Bachman er úti. Steingrímur gæti misst mann í sínu kjördæmi. Þingmannastaðan er fyrir neðan grafið. 

samanburdur

Stjórnin hangir.

B

D

F

S

V

7

26

3

17

10

 Út úr þessu vildi ég sjá 2/3 - 1/3 (8/4) stjórn D og B en þar sem flokkarnir skiptu ráðuneytunum upp á nýtt.

Þingmannalistinn byggður á öllum könnunum,

Jón Sigurðssonj 5
Siv Friðleifsdóttir 
Guðni Ágústsson 
Bjarni Harðarson 
Valgerður Sverrisdóttir 
Birkir Jón Jónsson 
Magnús Stefánsson 
Geir H. Haarde 
Björn Bjarnason 
Illugi Gunnarsson 
Ásta Möller 
Birgir Ármannsson 
Dögg Pálsdóttirj 9
Guðlaugur Þór Þórðarson 
Guðfinna S. Bjarnadóttir 
Pétur H. Blöndal 
Sigurður Kári Kristjánsson 
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 
Bjarni Benediktsson 
Ármann Kr. Ólafsson 
Jón Gunnarsson 
Ragnheiður Elín Árnadóttir 
Ragnheiður Ríkharðsdóttirj 8
Árni M. Mathiesen 
Árni Johnsen 
Kjartan Þ. Ólafsson, 
Björk Guðjónsdóttir 
Kristján Þór Júlíusson 
Arnbjörg Sveinsdóttir 
Ólöf Nordal 
Sturla Böðvarsson 
Einar Kristinn Guðfinnsson 
Einar Oddur Kristjánsson 
Grétar Mar Jónssonj 2
Sigurjón ÞórðarsonJ 1
Guðjón Arnar Kristjánsson 
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 
Ágúst Ólafur Ágústsson 
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 
Össur Skarphéðinsson 
Jóhanna Sigurðardóttir 
Helgi Hjörvar 
Gunnar Svavarsson 
Katrín Júlíusdóttir 
Þórunn Sveinbjarnardóttir 
Árni Páll Árnasonj 6
Björgvin G. Sigurðsson 
Lúðvík Bergvinsson 
Kristján L. Möller 
Einar Már Sigurðarson 
Lára Stefánsdóttir 
Guðbjartur Hannesson 
Karl V. Matthíasson 
Kolbrún Halldórsdóttir 
Álfheiður Ingadóttirj 4
Katrín Jakobsdóttir 
Árni Þór Sigurðsson 
Paul Nikolovj 7
Ögmundur Jónasson 
Atli Gíslason 
Steingrímur J. Sigfússon 
Jón Bjarnason 
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttirj 3


mbl.is Ríkisstjórnin með meirihlutafylgi skv. könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meirihluti?

EF könnun Blaðsins er rétt á Sjálfstæðisflokkurinn möguleika á meirihluta. Samkvæmt henni koma Frjálslyndir ekki manni inn, hvorki í kjördæmi eða sem jöfnunarmanni. 7,6% atkvæða féllu dauð og það dygði Sjálfstæðisflokknum til meirihluta.

B

D

F

I

S

V

5

32

0

0

18

8

8,30%

44,70%

4,70%

2,90%

25,30%

14,10%

Mikið væri það gaman að sjá einn flokk til ábyrgðar. Þá væri ekki lengur hægt að skýla sér á bak við samstarfsflokkinn. Þá yrðu menn að standa fyrir sínu.

Ég hef enga trú á því að könnun Blaðsins rætist. Ekki frekar en ég held að Jóhannesi í Bónus verði að ósmekklegri ósk sinni. Var það þetta sem menn höfðu í huga þegar vildu takmarka augýsingar stjórnmálaflokka?

Ég vann um mjög skamma hríð í Bónus fyrir mörgum árum þegar ég var nýútskrifaðu úr menntó, þá var Jói meiri trúður en stjórnandi, ég hef ekki séð neitt á síðari árum sem hefur breytt því áliti mínu.


Mig langar ekki til að vera leiðinlegur...

en er einhver til í að benda Ómari Ragnarssyni á það að hann þarf meira en 5% á landsvísu til að komast inn. Hann þarf amk. 8-9% í einhverju einu kjördæmi og komast inn með kjördæmakjörinn mann til að fá jöfnunarþingmenn. Hann sagði í kosningaþætti Stöðvar 2 að Íslandshreyfinguna vantaði bara 2% og þá fengju þau 3 menn inn! Onei Ómar minn svo einfalt er það ekki. Frjálslyndir eru að ná inn mönnum út á vinsældir Guðjón Arnars í NV kjördæmi ef hann fer niður fyrir 9% þar þá detta Frjálslyndir alveg útaf þingi.

Eins gæti það gerst að Guðjón komist inn sem kjördæmakjörinn en ef Frjálslyndir ná ekki 5% á landsvísu þá sæti Guðjón einn í þingflokki Frjálslyndra.

Þetta gætu orðið ágætar kosningar ef við losnum við Frjálslynda og Jónínu Bjartmarz á einu bretti.

Til viðbótar má benda á að flutningur kvennafylgis frá VG til Samfykingar mun líklega hafa þau áhrif að færri konur enda á þingi en ella.

-----
Uppfært
Himnarnir hrynja!
Í kosningakerfinu sem var við lýði 1959 - 2003 var reglan sú að til að fá 
úthlutað jöfnunarsæti þurfti framboð að fá kjördæmakjörinn mann inn.
Svo er ekki lengur, en ég hef staðið í þeirri trú mjög lengi.
Í greinargerð með lagafrumvarpi að lögum um kosningar til alþingis segir:
þau stjórnmálasamtök komi ein til álita við úthlutun jöfnunarsæta sem hlotið hafa að minnsta kosti fimm af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu. Skiptir þá ekki máli hvort framboð hafi náð þingsæti í kjördæmi eins og nú er, sbr. síðari málslið 1. mgr. 112. gr. kosningalaga, ef það hefur á annað borð náð þessu lágmarksfylgi á landsvísu. 

Mér finnst mjög erfitt að kyngja því að hafa haft rangt fyrir mér í einhverju sem viðkemur þessu máli.

PS
Það hefur engin áhrif á þingmannaspánna síðustu bara Nýjir þingmenn? II

 

Spáin eftir könnun Félagsvísindstofnunar í kvöld:

B

D

F

S

V

8

23

4

18

10



Nýju þingmennirnir ? III

Tvær kannanir komu í gær og við það breyttist myndin. Frjálslyndir skriðu inn og fylgi stjórnarflokkana fór niður í lágmarksþingmeirihluta, en hún lafir. Það er áhugavert að skoða Framsókn, eina fólkið sem er öruggt með sæti eru Valgerður, Guðni og Magnús Stefánsson, jú Birkir Jón er nánast öruggur líka. Jöfnunarmenn halda áfram að flakka, Siv er áfram inni frá í gær en Herdís Þórðardóttir er úti. Það er reyndar ótrúlegt að hún skuli vera í baráttusæti miðað við að menn voru ekkert vongóðir um að halda Einari Oddi inni fyrr í vetur. Sturla og Einararnir eru greinilega vanmetnir. 

Ég tek það fram að blanda svona saman könnunum hefur engin áhrif á líkur. Það eina sem það gerir er að draga úr sveiflum sem eru stundum skrítnar síðustu vikuna fyrir kjördag.

BDFSV
72531810

Siv Friðleifsdóttirj 7
Guðni Ágústsson 
Bjarni Harðarson 
Valgerður Sverrisdóttir 
Birkir Jón Jónsson 
Magnús Stefánsson 
Herdís Á. Sæmundardóttirj 3
Geir H. Haarde 
Björn Bjarnason 
Illugi Gunnarsson 
Ásta Möller 
Birgir Ármannssonj 6
Guðlaugur Þór Þórðarson 
Guðfinna S. Bjarnadóttir 
Pétur H. Blöndal 
Sigurður Kári Kristjánsson 
Sigríður Ásthildur Andersenj 9
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 
Bjarni Benediktsson 
Ármann Kr. Ólafsson 
Jón Gunnarsson 
Ragnheiður Elín Árnadóttir 
Árni M. Mathiesen 
Árni Johnsen 
Kjartan Þ. Ólafsson, 
Björk Guðjónsdóttir 
Kristján Þór Júlíusson 
Arnbjörg Sveinsdóttir 
Ólöf Nordal 
Sturla Böðvarsson 
Einar Kristinn Guðfinnsson 
Einar Oddur Kristjánsson 
Grétar Mar Jónssonj 2
Sigurjón ÞórðarsonJ 1
Guðjón Arnar Kristjánsson 
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 
Ágúst Ólafur Ágústsson 
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 
Mörður Árnasonj 8
Össur Skarphéðinsson 
Jóhanna Sigurðardóttir 
Helgi Hjörvar 
Steinunn Valdís Óskarsdóttirj 4
Gunnar Svavarsson 
Katrín Júlíusdóttir 
Þórunn Sveinbjarnardóttir 
Árni Páll Árnason 
Björgvin G. Sigurðsson 
Lúðvík Bergvinsson 
Kristján L. Möller 
Einar Már Sigurðarson 
Guðbjartur Hannesson 
Karl V. Matthíasson 
Kolbrún Halldórsdóttir 
Álfheiður Ingadóttir 
Katrín Jakobsdóttir 
Árni Þór Sigurðsson 
Ögmundur Jónasson 
Guðfríður Lilja Grétarsdóttirj 5
Atli Gíslason 
Steingrímur J. Sigfússon 
Þuríður Backman 
Jón Bjarnason 

 


Nýju þingmennirnir? II

Áfram halda talnaleikar. Ég ákvað að brjóta nokkrar aðferðafræðilegar reglur til að ná út sveiflum og fá reyna að fá líklegri mynd. Það sem ég gerði var að taka 3 nýjustu kannair í hverju kjördæmi fyrir sig og tók meðaltal af þeim til að reyna að fá meðalstuðning flokks í hverju kjördæmi. Síðan tók ég 3 nýjustu landskannanirnar og dreifði prósentunum á kjördæmin eins og meðal stuðningur þeirra í hverju kjördæmi sagði. Þannig að 40% Sjálfstæðisflokks skiptist þannig að 10% þeirra fór í NV 28% í SV 21% í RS osfrv. Með því að taka 3 nýjustu landskannanirnar þá minnka sveiflur en um leið þá dregur úr áhrifum sóknar og taps. Á morgun ætla ég svo að taka 3 nýjustu kannanirnar og svo koll af kolli þannig að ef einhver flokkur er í sókn þá kemur það í ljós. Þessi aðferð stenst auðvitað ekki nána aðferðafræðilega skoðun en hún hjálpar mér við að finna líklega þingmenn.

Þegar ég tók meðaltal 3 nýjustu kannana í NV kjördæmi kom í ljós að Frjálslyndir voru með að meðaltali 9,25% stuðning, það dugði ekki til að koma Guðjóni Arnari inn sem kjördæmakjörnum, yfir 10% er eiginlega lágmark í NV kjördæmi. Frjálslyndir eru því útaf þingi!

Kannanirnar á landsvísu eru : Fréttablaðið 6. maí, Capacent 7.maí, Capacent 8.maí.  Capacent könnun dagsins í dag kemur inn á morgun og þá dettur Fréttablaðskönnunin út.

Þingmannalisti dagsins lítur svona út:
(Jöfnunarmenn eru skáletraðir og með j við nafnið)

Siv Friðleifsdóttirj
Guðni Ágústsson 
Valgerður Sverrisdóttir 
Birkir Jón Jónsson 
Höskuldur Þór Þórhallssonj
Magnús Stefánsson 
Geir H. Haarde 
Björn Bjarnason 
Illugi Gunnarsson 
Ásta Möller 
Birgir Ármannsson 
Guðlaugur Þór Þórðarson 
Guðfinna S. Bjarnadóttir 
Pétur H. Blöndal 
Sigurður Kári Kristjánsson 
Sigríður Ásthildur Andersenj
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 
Bjarni Benediktsson 
Ármann Kr. Ólafsson 
Jón Gunnarsson 
Ragnheiður Elín Árnadóttir 
Ragnheiður Ríkharðsdóttir 
Árni M. Mathiesen 
Árni Johnsen 
Kjartan Þ. Ólafsson, 
Björk Guðjónsdóttir 
Unnur Brá Konráðsdóttir 
Kristján Þór Júlíusson 
Arnbjörg Sveinsdóttir 
Ólöf Nordal 
Sturla Böðvarsson 
Einar Kristinn Guðfinnsson 
Einar Oddur Kristjánsson 
Herdís Þórðardóttir 
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 
Ágúst Ólafur Ágústsson 
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttirj
Mörður Árnasonj
Össur Skarphéðinsson 
Jóhanna Sigurðardóttir 
Helgi Hjörvar 
Steinunn Valdís Óskarsdóttirj
Gunnar Svavarsson 
Katrín Júlíusdóttir 
Þórunn Sveinbjarnardóttir 
Björgvin G. Sigurðsson 
Lúðvík Bergvinsson 
Róbert Marshallj
Kristján L. Möller 
Einar Már Sigurðarson 
Guðbjartur Hannesson 
Karl V. Matthíasson 
Kolbrún Halldórsdóttir 
Álfheiður Ingadóttir 
Katrín Jakobsdóttir 
Árni Þór Sigurðsson 
Ögmundur Jónasson 
Guðfríður Lilja Grétarsdóttirj
Atli Gíslason 
Steingrímur J. Sigfússon 
Þuríður Backman 
Jón Bjarnason 
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttirj

 

Samsetningin væri svona:

B

D

S

V

6281811

Einhverjir voru að biðja mig um að setja excel skjalið á netið en það er ekki fyrir neinn að skilja hvernig það er uppbyggt, það tók mig klukkutíma bara að komast inn í það aftur og skilja hvað ég var að fara þegar ég bjó það til. Ég notaði það til að byggja útskýringatöflur sem eru á www.kosning2003.is og www.kosning.is til að skýra úthlutun kjördæmasæta og jöfnunarsæta. Ég þyrfti að láta langa ritgerð með til útskýringa, ég held ég sleppi því. Þetta eru líka bara talnaleikir.


Nýju þingmennirnir?

Fyrir 4 árum þegar ég var að vinna í dómsmálaráðuneytinu við kosningarnar þá útbjó ég Excel skjal sem hjálpaði mér við að útskýra úthlutun þingsæta. Ég var að leika mér að því að henda inn í það upplsýingum úr skoðanakönnunum Capacent til að sjá hverjir verða líklegir þingmenn okkar. Ég ætla ekki að fara út í útreikningana en útskýringar má finna hér á úthlutun kjördæmasæta og jöfnunarsæta.

Ég notaði alltaf nýjustu könnun sem völ var á. Jöfnunarmenn eru skásettir og talan við nafnið gefur til kynna hvar í röðinni jöfnunarsætið er.

Jón Sigurðsson 4
Guðni Ágústsson
Bjarni Harðarson
Valgerður Sverrisdóttir
Birkir Jón Jónsson
Magnús Stefánsson
Geir H. Haarde
Björn Bjarnason
Illugi Gunnarsson
Ásta Möller
Birgir Ármannsson
Dögg Pálsdóttir 7
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Pétur H. Blöndal
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigríður Ásthildur Andersen 8
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Bjarni Benediktsson
Ármann Kr. Ólafsson
Jón Gunnarsson
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Árni M. Mathiesen
Árni Johnsen
Kjartan Þ. Ólafsson,
Björk Guðjónsdóttir
Kristján Þór Júlíusson
Arnbjörg Sveinsdóttir
Ólöf Nordal
Sturla Böðvarsson
Einar Kristinn Guðfinnsson
Einar Oddur Kristjánsson
Herdís Þórðardóttir 5
Grétar Mar Jónsson 1
Sigurjón Þórðarson 2
Guðjón Arnar Kristjánsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ágúst Ólafur Ágústsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir 3
Össur Skarphéðinsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Helgi Hjörvar
Gunnar Svavarsson
Katrín Júlíusdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Árni Páll Árnason 6
Guðmundur Steingrímsson 9
Björgvin G. Sigurðsson
Lúðvík Bergvinsson
Kristján L. Möller
Einar Már Sigurðarson
Guðbjartur Hannesson
Kolbrún Halldórsdóttir
Álfheiður Ingadóttir
Katrín Jakobsdóttir
Árni Þór Sigurðsson
Ögmundur Jónasson
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Atli Gíslason
Steingrímur J. Sigfússon
Þuríður Backman
Jón Bjarnason
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir

Gummi Steingríms færi hér inn með 5,7% atkvæða á bak við sig en eins og með Árna Magg fyrir 4 árum þá lendir síðasta sætið á þingsæti þar sem ekki er mikið að baki. Það skýrist af þvi að jöfnunarsætunum er úthlutað í röð. fyrsta sætið eiga Frjálslyndir og það fer þangað sem þeir eiga mest ónýtt, í þessu tilviki átti Sjálfstæðisflokkur meira ónýtt í Suðurkjördæmi en það var ekki komið að honum og Frjálslyndir taka eina jöfnunarsætið sem er í kjördæminu.  Guðjón Arnar rétt slefar inn, annars myndu sætin líklega skiptast á B, D og S.

Heildafjöldi þingsæta:

B

D

F

S

V

62731611

Þessar tölur að ofan finnst mér einhvernveginn líklegar til vandræða og stjórnarkreppu. En þetta er auðvitað fáránlega mikill nördaháttur að búa svona til.


Jón gæti vel endað inni.

Fréttin í mbl og á rúv miðar við kjördæmakjörna þingmenn eðlilega því þeir eru þeir einu sem hægt er að reikna af einhverju viti. Það þarf að hafa í huga að jöfnunarsætin geta reynst flokkum drjúg.

Þannig komst helmingur þingflokks Frjálslyndra inn sem jöfnunarþingmenn síðast.

Hér að neðan er tafla yfir þá sem kjörnir voru í jöfnunarsæti fyrir 4 árum. Þetta eru 9 sæti og 4 þeirra komust inn með undir 7,2% atkvæða á bak við sig.

Kjörd.þingm. framb.hlutfallstala
RVK NÁrni Magnússon B 5,81%
SVGunnar Örn Örlygsson F 6,75%
NAÞuríður Backman U 7,06%
NVSigurjón Þórðarson F 7,12%
SJón Gunnarsson S 7,42%
RVK SBirgir Ármannsson D 7,61%
SVBjarni Benediktsson D 7,68%
RVK SÁgúst Ólafur Ágústsson S 8,33%
RVK NSigurður Kári Kristjánsson D 8,88%

Þannig er það að ekki fullreynt fyrr en öll atkvæði hafa verið talin vort einhver komist inn eða ekki.

Sigurjón "flugbeitti" Þórðarson komst þannig inn á þing í jöfnunarsæti með 1.993,2 atkvæði á bak við sig. Hann var þó ekki sá sem minnstan stuðninga hafði en það var Jón Bjarnason sem flaug inn í kjördæmakjörið sæti í NV-kjördæmi á 1987 atkvæðum.  Það var í annað sinn sem Jón fór inn með fá atvæði á bak við sig en hann hlaut kosningu 1999 með 561 atkvæði. En það var innan við helmingur þeirra atkvæða sem hann fékk í prófkjöri Samfylkingarinnar í febrúar það ár. Í prófkjörinu dugðu rúm 1300 atkvæði til 4. sætis á lista Samfylkingarinnar rúmum mánuði síðar var Jón kominn í framboð fyrir Vinstri Græna og uppskar eins og áður sagði 561 atkvæði og þingsæti.


mbl.is Gallupkönnun: Formaður Framsóknar nær ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband