Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Gamli sorrý...

Ég hef ekki gert það upp við mig hvort þessi texti Megasar á best við borgina eða borgarstjórann?

 

VilhjalmurGAMLI SORRÝ GRÁNI

Gamli sorrý Gráni er gagnlaus og smáður
gisinn og snjáður, meðferð illri af.
Hann er feyskinn og fúinn og farinn og lúinn
Og brotinn og búinn að vera
Hann er þreyttur og þvældur og þunglyndur spældur
beiskur og bældur í huga

Gamli sorrý Gráni er gagnlaus og smáður
gisinn og snjáður, meðferð illri af.
Hann er beygður og barinn og brotinn og marinn
og feigur og farinn á taugum
Hann er knýttur og kalinn og karoní falinn
Ó hvað hann er kvalinn af öllum.

Gamli sorrý Gráni er gagnlaus og smáður
gisinn og snjáður, meðferð illri af.

 

 


Skyr í Ameríku

Skyr er mikill lúxus hjá okkur hér vestra, í fyrsta lagi er það fokdýrt eða næstum 3$ fyrir eina dós og í öðru lagi þá er Whole Foods ekki í uppáhaldi hjá okkur, hún er ekki á svarta listanum en það eru aðrar verslanir sem við kjósum fremur. Í gær var hinsvegar hátíð það var Skyr hádegi, við komumst ekki einu sinni út úr Whole Foods svo mikil var ákefðin. 

Karitas var himinlifandi á meðan Helena, sem var að bragða skyr í fyrsta eða annað sinn, neytti með sínum hætti.

 

 

hmy2


Ráðvilltur ráðherra

ossiAf öllum bloggurum á öllum bloggvefjum í heiminum þá virðist iðnaðarráðherra hafa mestan áhuga á þessum arma bloggara sem ritar hér og á eyjunni. Í nott ritaði hann pistil mér til heiðurs vegna einhvers sem hann heldur að ég hafi sagt eða ýjað að í öðrum pistili. Það er stundum erfitt að skilja mikilmennin.

Ég skrifaði þessa færslu til að gefa mynd af því hver hagfræðingur félagsmálaráðherra er:

Hagfræðingur félagsmálaráðuneytisins

Eitthvað var lítið um heimsóknir á þá færslu þannig að iðnaðarráðherra ákvað að vekja athygli á hvaða snilling Jóka væri kominn með til sín í þessari færslu:

Sturtað niður úr gullklósettinu

Mér fannst ráðherrann vera eitthvað ráðvilltur og svara því hér:

Næturgöltur ráðherrans

 

Svona er internetið sniðugt, hér get ég setið í henni Ameríku og skrifast á við mikilmennin heima á Íslandi á meðan dæturnar tæta sig í gegnum dótið okkar.

 

 


Ókeypis peningar!

Nú eru aðeins tveir dagar eftir af frábæru tilboði Bóksölu Andríkis  þar sem í boði er frí áskrift að tímaritinu Þjóðmál.

Allir viðskiptavinir Bóksölunnar í dag og á morgun fá eins árs kynningaráskrift að tímaritinu Þjóðmálum í kaupbæti með pöntun sinni. Þjóðmál eru forvitnilegt tímarit um stjórnmál og menningu og algerlega ómissandi fyrir frjálslynt fólk. Í Bóksölu Andríkis fást svo ótal bækur sem þangað hafa verið valdar vegna líkindanna á því að þær höfði til vitiborinna áhugamanna um þjóðmál. Bækurnar kosta frá kr. 1500 og upp í kr. 2500, og er heimsending innanlands ætíð innifalin í verðinu.

losturerekkiglaepur_98_2Ég verð að mæla með bókinni"Löstur er ekki glæpur" eftir Lysander Spooner, góð og upplýsandi bók sem á erindi til allra.

Eins og bóksala Andríkis bendir á:

 

spoonerauglysing


Kalifornía 1980

Fyrsta heimsókn mín hingað til Bandaríkjanna var árið 1980. Hér er mynd af okkur systkinunum á báti á Kyrrahafinu. Bróðir minn og systir væru mjög trendí núna.

Scan10004


Laugardagsþátturinn

Laugardagsþátturinn á morgun kl. 13 verður m.a. tilkeinkaður umfjöllun um bandarísk stjórnmál. Ég legg þar eitt eða tvö orð í belg. Vonandi verður þetta áhugaverður þáttur.

 

lk_monkeyback_500


Lausnin er fundin... ísl-enskt hugvit.

Í framhaldi af síðasta fýlukasti yfir ofbeldi höfundarréttarhafa gagnvart viðskiptavinum sínum fékk ég póst frá gömlum kunningja sem búsettur er í London. 

streamburstHann hefur ásamt félögum sínum í fyrirtækinu Streamburst búið til nýja tegund afritunarvarnar sem þeir kalla "Forensic DRM"  Þar eru engar læsingar á efninu sem þeir selja en þeir setja ósýnilegt "vatnsmerki" á hljóð og myndrásir sem tengir kaupandann við efnið. Þá  birtist í upphafi myndskráa  5 sekúndna skilaboð um hver keypti skránna.

Þeir treysta kaupandanum til að fara skynsamlega með efnið, en ef 100 þúsund eintök birtast einhverstaðar á netinu þá er hægt að sjá hver keypti skránna í upphafi.

Þetta er nákvæmlega það sem maður vill sjá. Málin hafa aðeins skánað að mér skilst heima með því að tónlist.is er farin að selja óvarið efni. Áður var fyrirkomulagið þannig að ég gat ekki deilt tónlist sem ég keypti með konunni minni! Þannig er það enn víða.

Hér má sjá grein um Streamburst sem segir sögu þeirra.

Ég hef engan áhuga á stolnu P2P efni, prófaði Napster á sínum tíma en ef ég fæ að kaupa efni á heiðarlegan hátt þá kýs ég það eins og flestir gera. En það er óþolandi að höfundarétthafar skuli alltaf koma fram við mann sem viðskiptaóvin.

Ég hef enga samúð með STEF og SH, þær peningamyllur velta hundruð milljóna sem berast svo ekki til þeirra sem helst eiga það skilið.

 

PS. 
Að lokum verð ég aftur að benda á Söngva af sviði á Rás 1, snilldarþættir í umsjón Viðars Eggertssonar.


Skífan - Þú skuldar

Það er að rifjast upp fyrir mér hvað afritunarvörn er mikill þjófnaður. Vegna útilegu er ég orðinn meiri neytandi íslenskrar tónlistar en áður og var að setja inn á tölvuna nokkra gamla og góða diska sem ég hef ekki hlustað á lengi þegar ég lenti á XXX Rottweiler - Þú skuldar. Sá diskur er þeim kostum búinn að það er ekki hægt að spila hann í tölvum, mig minnir að vísu að það hafi verið til einhver fiff til að redda því en ég nenni ekki að spá í það.

Inn í umslaginu er skrifað að vilji maður hlusta á diskinn í tölvu þá eigi maður að fara inn á slóðina http://www.skifan.is/download og slá inn lykilorð sem er aftan á umslaginu. Slóðin er auðvitað dauð núna þannig að ég sit líklega eftir með sárt ennið og þó.. 

Ég sótti aldrei þessa tónlist á sínum tíma og lít svo á að Skífan er að svíkja samning með því að hafa slóðina ekki uppi. 

Hver er skylda Skífunnar til að standa við þennan samning sem þeir gera við sína viðskiptavini? Ég veit að hér vestra gæti ég farið með þá beint inn í dómssal og náð amk fram vörunni sem ég keypti ef ekki líka skaðabótum vegna sálræns skaða.

En ég er forvitinn, hver er skylda Skífunnar samkvæmt íslenskum lögum til að standa við loforð sem þetta? NB því eru engin tímatakmörk. 

Hver er staðan með alla þessa diska sem Skífan seldi með afritunarvörn? Verður fólk að sætta sig við það að geta einungis spilað tónlistina sem það keypti einungis í geislaspilara af ákv. tegund.

Ég held að svar Skífunnar verði að benda mér á að kaupa tónlistina öðru sinni á tonlist.is


Til hvers eru menn í pólitík?

Hvað segir maður um þingmann sem er fyrsti flutningsmaður 16 frumvarpa á síðasta kjörtímabili og þar af 4 sinnum um sama málefni? Á hverju þingi lagði hann fram frumvarp um þetta hugðarefni sitt, það er fjórðung allra frumvarpa sem þingmaðurinn hefur lagt fram í eigin nafni.

Er ekki hægt að segja óhikað, að málið sé viðkomandi þingmanni hjartans mál?

En hvað á maður svo að halda, ef sami þingmaður verður ráðherra og lætur það verða eitt sitt fyrsta verk að gefa það út að hann ætli ekki að beita sér fyrir viðkomandi máli?

Er rökrétt að draga þá ályktun stjórnmálamaðurinn hugsjónalaus eiginhagsmunapotari sem er bara í pólitík fyrir eigið egó?

 

Hér vestra eru bíla- og tryggingasalar taldir meðal síðustu sorta. Þeir vita kannski eitthvað meira en margur heldur, þessir kanar.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband