Úr Eikartúni til Alexandríu

Útlagafjölskyldan var að flytja fyrir stuttu úr Eikartúni innfyrir hringveginn inn í iðuna í Alexandríu.

Alexandría er borg litlu eldri en Reykjavík og með svipaðan mannfjölda, hún er þó nokkuð minni að flatarmáli.

mynd15

 

mynd17

Það er kannski ekki mikið dót sem fjölskyldan dröslar með sér eftir eitt ár en alveg nóg.

 

Nýja húsið okkar

marz 091

Þótt okkur hafi liðið mjög vel í Eikartúni þá eru nokkur atriði sem nýja húsið hefur framyfir það gamla.

  1. Liz getur gengið í vinnuna
  2. Garður fyrir stelpurnar að leika sér.
  3. Alexandría þykir besti bærinn á DC svæðinu fyrir gangandi vegfarendur
  4. Gamli bærinn í Alexandríu er eins og maður vildi sjá miðbæ Reykjavíkur, mikil saga en rými fyrir fyrirtæki og þróun.
  5. Góður heilsdags skóli í göngufæri
  6. Líf á götum.
  7. Meira pláss til að taka á móti gestum.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið verður gaman að koma í heimsókn. Til hamingju með nýja heimilið.

Gisli Freyr Valdórsson (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 23:33

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

6.  Þegar vel viðrar en það er sjaldgæfara en í DC

Annars eru allir að verða vitlausir hér yfir fækkun bárujárnskofa.

Furðulegt, að allir Kamparnir skulu hafa verið rifni.

Miðbæjaríhaldið

vill halda í það sem hald er í,--  henda öðru

Bjarni Kjartansson, 14.5.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband