Hvar eru fjölmiðlarnir?

Þegar maður rennir yfir drög að ályktun um menningarmál sem liggja fyrir landsfundi þá er það eftirtektarvert að ekki er að finna stafkrók um stefnu Sjálfstæðisflokksins um fjölmiðla!

Fyrir 18 mánuðum sagði Sjálfstæðisflokkurinn þetta:
Fjölmiðlar
Að undanförnu hefur nauðsyn rammalöggjafar um starfsemi fjölmiðla orðið æ augljósari. Þessi veigamikli og viðkvæmi þáttur lýðræðislegrar umræðu þarf að njóta óskoraðs trausts almennings. Koma þarf í veg fyrir samþjöppun og einokun á fjölmiðlamarkaði svo stórir aðilar á markaði fái ekki neytt aflsmunar til þess að hafa áhrif á fréttaflutning og skoðanamyndun í landinu. Skorður á eignarhaldi fjölmiðla kunna að vera nauðsynlegar til að ná þeim markmiðum að tryggja heilbrigða samkeppni og fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Það er kjarni sjálfstæðisstefnunnar að vinna gegn einokun og hringamyndun. Landsfundur skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi.

Núna er algjör þögn, hví? Erum við hætt við?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hef ekki kynnt mér þennan þátt, en segi bara,,,úpppssss.

Sigfús Sigurþórsson., 14.4.2007 kl. 03:54

2 identicon

Friðjón minn. Sósíalistar vilja setja lög um alla skapaða hluti. Líka fjölmiðla. Ég segi bara húrra ef rétt er.

Björgvin Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 12:03

3 identicon

Friðjón minn. Sósíalistar vilja setja lög um alla skapaða hluti. Líka fjölmiðla. Ég segi bara húrra ef þetta reynist rétt hjá þér.

Björgvin Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband