tveir punktar

á meðan beðið er eftir næsta kafla í stóra Icelandair málinu er ekki úr vegi að benda mogganum á að hvernig síðustu kosningar fóru í raun  og veru. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tæp 34% ekki 39%

Úrslit alþingiskosninga 10. maí 2003 eftir kjördæmum
Hlutfallsleg skipting, %
Alls 
Framsóknarflokkur17,7%
Sjálfstæðisflokkur33,7%
Frjálslyndi flokkurinn7,4%
Nýtt afl1,0%
Samfylkingin31,0%
Framboð óháðra í suðurkjördæmi0,5%
Vinstri hreyfingin - grænt framboð8,8%

 Heimild: Hagstofa Íslands

Að öðru

Þórarinn Eldjárn byrjaði að bloga fyrir stuttu og reit þennan ágætis punkt:

Síendurtekið efni er gamla klisjan um meint yfirráð Sjálfstæðisflokksins yfir Ríkisútvarpinu og öllu sem þar heyrist og sést og fer fram. En í hverju felast þau yfirráð? Hvað er útvarp annað en fólkið sem starfar þar og við heyrum í dags daglega? Ég minnist spjallþáttar sem ég hlustaði á fyrir fáeinum misserum. Þar voru nokkrir eindregnir andstæðingar ríkisstjórnarinnar að venju samankomnir fyrir hádegi á laugardegi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar en þó einkum ógagn og ónauðsynjar. Talið barst að Ríkisútvarpinu og einn kjaftajötnanna nefnir að nú sé svo komið að það þurfi flokksskírteini í Sjálfstæðisflokknum til að fá þar inni. Allir viðstaddir flissuðu samþykkjandi að þessum almæltu sannindum, þar hittirðu nú aldeilis naglann á höfuðið...

En ég, saklaus hlustandinn heima, sagði við sjálfan mig: Ja, ljótt er að heyra, en er þetta virkilega svona? Ég hlustaði og hlusta enn mikið á Rás eitt og fór að hugsa: Í hverjum heyrist í útvarpinu? Hverjir ERU Rás eitt? Á þeim tíma reyndust það eftir stutta minnisleit einkum vera eftirtaldir, allt saman frábærir, lifandi og áhugasamir útvarpsmenn: Ævar Kjartansson, Arthúr Björgvin Bollason, Jórunn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson, Anna Kristín Jónsdóttir, Leifur Hauksson, Eiríkur Guðmundsson, Hjálmar Sveinsson, Jón Ásgeir Sigurðsson, Gunnar Gunnarsson, Friðrik Páll Jónsson, Steinunn Harðardóttir, Una Margrét Jónsdóttir...

Ég man að mér þóttu það óvænt og váleg tíðindi að allt þetta ágæta fólk skyldi vera gengið í Sjálfstæðisflokkinn.

 Ef ég heyri orðið bláskjár aftur þá gríp ég til ofbeldis.

 

 


mbl.is Vinstri grænir mælast með 21% fylgi í nýrri Gallupkönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnljótur Bjarki Bergsson

Ég hygg, að hefði Sjálfstæðisflokkurinn hlotið um 39% atkvæða, þó það hefðu ekki verið nema 38,5% þá hefði andrúmsloftið við stjórnarmyndunina sennilega orðið annað.  35,1% hefði sennilega kannski e.t.v. líka dugað til að breyta einhverju.
Þar fyrir utan hermir frétt Morgunblaðsins að heildar fylgi þeirra flokka sem fengu þingmenn kjörna hafi verið um 103%, að slepptum N og T listum. Þá gefur fréttin ekki einungis til kynna að Sjálfstæðisflokkur hafi fengið meira fylgi en raunin var, heldur er og 1% dregið af fylgi Samfylkingarinnar.

"VG fékk 9% atkvæða við síðustu kosningar.[...] Framsóknarflokkurinn [...] var með 18%[...] Samfylkingin fékk 30% atkvæða í síðustu kosningum. [...] Sjálfstæðisflokkurinn [...] 39% [...] Frjálslyndi flokkurinn bætir við sig 2% og er með 9%".

Arnljótur Bjarki Bergsson, 2.2.2007 kl. 02:44

2 identicon

Það er ekki verið að tala um Blávarpið heldur tök þessa flokks á Sjónvarpinu. Lamandi tök reyndar, eins og sést á dagskránni.

Björgvin á bobo-bloggi (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband