Bloggfærslur mánaðarins, október 2006

Hver ályktaði?

í mars 2006

Það er fagnaðarefni að Íslendingum stafar ekki lengur ógn af Sovétríkjunum

Ekki einu orði var minnst á Austur-Þýskaland, Ceylon eða Efri-Volta!


Hver sagði...

 

Það er betra að segja sig úr stjórnmálaflokki heldur en að þurfa að kyngja eigin hugmyndafræði og skoðunum fyrir frama innan flokksins.

 og hvað mun viðkomandi hanga lengi í þeim flokki sem hann leitar frama?


Jón Baldvin í X-factor.

Yfirlýsingar Jim Beam um að síminn hans hafi líka verði hleraður minnir meira á mann sem skortir athygli en eitthvað alvöru mál. Getur ekki einhver bent honum á að áheyrnarprufur fyrir X-faktor eru á Hótel Nordica á laugardag. Þar gæti hann sefað þörf sína fyrir athygli og við þyrftum ekki að hlusta á sjúkann mann delera.
mbl.is Sími Jóns Baldvins hleraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um embættismenn

Miðlar Lifandi blogar um yðar einlægan í gær. Af því tilefni vil ég benda á að ég er ekki embættismaður, í stjórnarráðinu eru það eingöngu skrifstofustjórar og hærra settir sem eru embættismenn. (Nánar um hverjir eru embættismenn í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.) Kærur fari því vinsamlegast til hlýrri og skemmtilegri staða en niðurlanda og nágrennis, kærið mig til Sevilla eða San Sebastian!

Til viðbótar má segja að ritgleði eða leti hefur því ekkert með skyldur starfsmanna ríkisins að gera. Sannleikurinn er að það er helst hin eðlislæga leti heldur aftur af besserwissernum. Hannn brýst aftur á móti fram þegar sumir leggja höfuðið á stokkinn og bjóða mönnum að höggva. Framundan er fæðingarorlof og andvökunætur og þá gætu blogin orðið tíðari.

 


Róbert er frambjóðandi Björgvins...

Björn Ingi kom fram með kenningu í blogfærslu í dag um að Róbert Marshall sé frambjóðandi Margrétar og  fari fram með einhverri sérstakri velþóknun hennar. Það má vera, en ég held að málum sé öðruvísi farið, Róbert er frambjóðandi Björgvins G. Sigurðssonar! Ástæðurnar fyrir þessari ályktun eru eftirfarandi.

  • Maður sem biður um 1.-2. sæti gerir sér ekki vonir um að fá 1. sætið en biður um það í von um að fá nógu mikið af atkvæðum til að tryggja sér 2. sætið.
  • Róbert er eyjapeyji, ef hann hefði bara beðið um 2. sætið hefðu allir í eyjum sagt við hann: Flott við kjósum þá Lúlla í 1. sætið og þig í 2. Það hjálpar RM ekki nóg þar sem hann er að slást við Lúlla um annað sætið tapi sá rauði slagnum við Björgvin.
  • Bingi nefnir í bloginu sínu að Björgvin og Róbert voru eitt sinn samherjar í blaðamennsku á Vikublaðinu og ég veit að þar er vinskapur enn. Ef RM klýfur eyjaatkvæðin þá gæti Björgvin setið með pálmann í höndunum. Björgvin er óvitlaus og gerir sér grein fyrir stöðunni, hans fólk mun ábyggilega kjósa Róbert í 2. sætið.
  • Jón Gunnarsson er svarti péturinn í fléttunni, nema menn meti Árborg svo öfluga að hún trompi Eyjar og Reykjanesið.

Vandi strákanna er 40% jafnréttisreglan Samfylkingarinnar. Hvað gerist ef röðin verður BGS, JG, RM, LB og svo einhver kvennana. Verður Lúlli þá að fara í 6. sætið?

Svo getur verið að Róbert komist ekki á blað og þetta sé allt saman spuni. Mér hefur alltaf fundist að þegar vinstri menn skrifa um innanflokks intrígur Sjálfstæðisflokksins þá er það yfirleitt tómur uppsuni. Þessi orð hér að ofan gæti verið hægri hliðin á þeim pening.  

 

 


Frelsið er yndislegt...

Það er undarleg frelsistilfinning sem fylgir því að vera búinn að taka ákvörðun um að hætta í starfi. Ég er búinn að starfa í dómsmálaráðuneytinu í fjögur og hálft ár og nú er nóg komið. Ég ætla að hverfa úr ráðuneytinu um áramót eða í janúar eftir því hvernig stendur á í stærsta verkefni mínu, rafvæðingu og flutningum Löbbans. Ráðuneytið er skemmtilegur vinnustaður með frábæru og mjög dedikeruðu fólki.  Þegar það fer saman við atorkusaman og frábæran ráðherra þá er hægt að flytja fjöll. Það hefur ótrúlega margt breyst á þessum tíma og það er búið að sá fræjum enn frekari framþróunar. Þess er óskandi að Björn fái til þess umboð að halda áfram. Mér er til efs að nokkur annar stjórnmálamaður hefði haft dug og þor í að gera þær breytingar á málefnum lögreglunnar sem hafa verið gera, fækkun umdæma osfrv. Með fullri virðingu fyrir öllum öðrum ráðherrum Sjálfstæðisflokksins þá efast ég um að hingað væri komin þyrla og fleiri á leiðinni ef einhver annar hefði haldið á málum. Það væri kannski búið að skipa þverfaglega og þverpólitíska nefnd sem engu skilaði. Starfsumhverfi lögreglunnar hefur breyst til hins betra,verkefni sýslumanna orðin fjölbreyttari og ýmsar réttarbætur komnar í gegn. Öryggismálum sjómanna er borgið þökk sé Birni. Er einhverjum öðrum ráðherra betur treystandi til að tryggja öryggi lands og þjóðar í kjölfar breytinga á varnamálunum?

Á síðasta þingi fóru flest öll mál dómsmálaráðherra í gegn, enginn annar ráðherra náði viðlíka árangri. Mér finnst það morgunljóst að maðurinn er öflugasti stjórnmálamaður sem við eigum núna. 

Vinstri menn vita það líka og þess vegna hamast þeir gegn honum eins og naut í flagi, syndin er að sumir sjálfstæðismenn taka þátt í aðförinni. Þeir sem ekkert eiga nema metnaðinn vilja ryðja þeim út sem geta.

Sjálfstæðisflokkurinn yrði veikur og aumur flokkur ef hugsjónalausir og valdagírugir menn sem ekkert hafa fram að færa nema eigin metorðagirnd stæðu einir í stafni. Á því fleyi þigg ég ekki far. 

Kjósendur hafa ekki alltaf séð í gegnum innihaldslausa potara fyrr en seint og um síðir.  Það má vera að Albertsgenið lifi enn í flokknum. 

-------- 

Ég er að hætta í ráðuneytinu af einni ástæðu. Ég skulda konunni minni búsetu á hennar heimaslóðum, við töluðum um 2 til 3 ár hérna þegar hún kom hingað til lands fyrir rúmum 6 árum, það er ég búinn að svíkja margoft.  Við værum vísast farin ef fjölgun væri ekki yfirvofandi, það er betra að klára slík mál hérlendis. Það heillar að búa í stærra samfélagi, innan um mergð manna. Það er sjarmerandi tilhugsun að ganga niður götu og vera fullviss um að maður hitti ekki vini, vandamenn eða einhverja samferðamenn eru ekki lengur í símaskránni. Það heillar að búa í samfélagi þar sem einstaklingnum er frekar treyst til að fara með eigin mál. Að þurfa ekki að vera kominn upp á náð og miskun ríkisins þegar öl er verslað. Mér finnst það magnað að forsjáin sé enn svona kjánaleg.  Sænskir og danskir hægri menn vita að þeir hafa skamma stund til stefnu og því fara þeir í framkvæmdir, en, to og tre. Flokkurinn er búinn að vera í ríkisstjórn í óratíð en enn er svo margt ógert. Það er eins og hræðslan um að missa völdin geri suma stjórnmálamenn stjarfklofa.

Vegna þess að ég er búinn að gefa upp um fyrirætlanir mínar um starfslok, er ég hættur að geyma skoðanir mínar fyrir mig og vinaspjall yfir krús. Þess vegna bloga ég, slétt sama um hvað þér finnst.

 


Nú sýður á öllu undir formanninum

Jæja nú má Geir fara að passa sig. Arnar Þór Stefánsson lögfræðingur er búinn að velta tveim þingmönnum frá 1991, "two down - five to go".  Mér finnst Geir ekki nógu vakandi fyrir þessari aðför, ekki nóg með að Arnar Þór er enn á meðal vor heldur skipar hann Andra Óttarsson sem framkvæmdastjóra flokksins. Andri er eins og allir vita ritstjóri Deiglunnar þar sem Arnar birti samblástur sinn gegn formanni flokksins og óhugsandi að Arnar Þór hafi birt grein sína án þess að verðandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins hafa lagt blessun sína yfir hana.

Ég held að ég sé að greina mynstur í aðgerðum Arnars og Andra. Það er öfug virðingarröð.

Fyrstur fór Guðmundur en hann er ekki ráðherra og hefur ekki verið. Næst kom Sigríður og hún er fyrrverandi ráðherra og sat stutt. Næstur hlýtur þá að vera Einar Kristinn en hann hefur setið styst á ráðherrastóli. Kjördæmisþing NV er um komandi helgi og ekki ólíklegt að dragi þar til tíðinda. Fjórði þingmaðurinn á höggstokkinn hlýtur svo að verða Árni Mathiesen, ráðherra frá 1999 og svo Geir en hann settist í fjármálaráðherrastólinn 16. apríl 1998. Síðastir á höggstokkinn eru svo Sturla og Björn en þeir urðu ráðherrar vorið 1995. Björn missti út ár 2002 til 2003 þannig að hann kemur næstur á eftir Geir og síðastur á "hit"lista Arnars og Andra er þá samgönguráðherrann Sturla Böðvarsson.

Virðingarlisti Andra og Arnars er þá svona:

  1. Sturla Böðvarsson
  2. Björn Bjarnason
  3. Geir Haarde
  4. Árni Mathiesen
  5. Einar Kristinn Guðfinnsson
  6. Sigríður Anna Þórðardóttir (úti)
  7. Guðmundur Hallvarðsson (úti)
Við fylgjumst spennt með því hvernig þessu reiðir af. Einar Kristinn þarf ekki að kemba hærurnar, það er komið að honum.

mbl.is Sigríður Anna Þórðardóttir hyggst hætta á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hitnar undir Geir

Sá fyrsti af sjömenningunum sem Arnar Þór Stefánsson lögfræðingur vill hrekja af þingi (eins og fjallað var um fyrir viku) hefur tekið áskorun hans. Guðmundur Hallvarðsson hefur eins og fréttin ber með sér, lýst því yfir að hann muni hætta á þingi í vor.

Arnari hlýtur að þykja þetta góður árangur, 1 þingmaður felldur á innan við 10 dögum.  Formaður flokksins hlýtur að vera farinn að finna hitann undir sætinu. Með þessu áframhaldi verður dýralæknirinn kominn í nautin í nóvember og Þorgerður verður orðin að formanni um jól!

Þræðir Arnars Þórs liggja víðar en mig grunaði.


mbl.is Guðmundur Hallvarðsson hættir á þingi í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband