Bloggfærslur mánaðarins, maí 2006

Hvar er vinstri sveiflan???

NFS er búinn að hamast á því í allan dag að úrslit kosninganna sýna vinstri sveiflu. Ég er ekki hlutlaus en ég sé hana bara ekki. Ef maður skoðar niðurstöðurnar úr 10 stærstu sveitarfélögunum þá kemur í ljós mikil sveifla frá framsókn og til vinstri grænna.  Annað ekki. Samfylking bætir við sig einum manni, Sjallar tveim, frjálslyndir einum.

 

 

 BDFSV
Reykjavíkurborg-11000
Kópavogsbær-20011
Hafnarfjarðarkaupstaður0-2011
Akureyrarkaupstaður-20021
Reykjanesbær010-10
Garðabær00000
Mosfellsbær-1-1011
Sveitarfélagið Árborg-120-21
Akraneskaupstaður-101-11
Seltjarnarneskaupstaður01000
 -82116

Tölurnar stemma ekki fullkomlega þar sem í töfluna vantar manninn sem L-listinn tapaði á Akureyri og ég treysti mér ekki til að áætla úr hvaða flokki maðurinn sem Neslistinn tapaði er.

Hverjar eru skýringarnar? Framsókn er í tómu rugli á landsvísu og vinstri grænir sem voru ekki tilbúnir í leikinn fyrir 4 árum mættu núna og uppskáru.  

 

 


Bjargað af ný-íhaldsmönnum

Mér fannst það ein merkilegasta frétt vikunnar að Ayaan Hirsi Ali sem hinir frjálslyndu Hollendingar ætla kannski að senda úr landi, hafi verið boðið vinna hjá American Enteprise Insitute. Þegar Dr. Michael Rubin kom hingað þá var dregin upp sú mynd af þeirri stofnun af þaðan kæmi bara illt.  Nöfn eins og Cheney, Perle og Wolfowitz voru nefnd, stofnunin hataðist við múslíma og ég veit ekki hvað og hvað.  Svo taka þeir upp á því að bjóða múslímskri konu sem stefnir í að verði flóttamaður vinnu! Þessi illmenni. Það er auðvitað óþolandi þegar heimurinn er ekki svart-hvítur með skýrar línur. En ég er viss um að Elías Davíðsson og restin af "loony-left" liðinu á Njálsgötunni finnur eitthvað til að hallmæla Ayaan Hirsi Ali.


mbl.is Forsætisráðherra Hollands vonast til þess að Hirsi Ali haldi réttindum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bróðirinn og bestu vinirnir

Það er komið nýtt vefrit um stjórnmál: www.punkturinn.is.  Þetta vefrit hefur einn tilgang, að hreyta fúllyndum ónotum í  Sjálfstæðisflokkinn.  Sumum finnst þetta brjálæðislega fyndið, ég veit að þessir drengir geta verið fyndari. Fyndast er samt þegar maður skoðar hverjir sitja í ristjórn vefritsins, hana skipa:

  • Gauti B. Eggertsson (bróðir Dags Bergþórusonar)
  • Guðmundur Steingrímsson (Vinur Dags og náinn ráðgjafi um árabil)
  • Kristján Guy Burgess (Vinur Dags og náinn ráðgjafi um árabil)
  • Örn Úlfar Sævarsson.  (Vinur Dags og helsti PR ráðgjafi hans)

Allt fínir strákar, en kræst þeir eiga allir að geta skrifað betur en þetta:

Kona sem ritstjórn rakst á í búð stakk upp á því að líklega ætti að breyta merki flokksins úr hinum fullynda fálka í einhvað mjúkt og sætt, kannski bleikan bangsa?

 Síðan heldur punkturinn áfram:

Þessi sérstæða þróun, sem er líklega einstæð í íslenskri stjórnmálasögu, er líklega best líst[sic] með litlu dæmi.

Bróðirinn hlýtur eiginlega að halda á pennanum þarna. Því ég er veit að hinir þrír eru ritfærari en þessi punktur ber vitni.

Heitstrenging: 

Ef Púnkturinn lifir í sex mánuði eftir að Sigrún Elsa er orðin að fyrsta varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar þá skal ég éta hatt Hallgríms Helgasonar!


Til hamingju Ísland!

Við erum nefnilega búin að sigra.

Ég er ótrúlega ánægður fyrir hönd RH, magnað.  Hann er sniðugur, strákurinn. 

Webwaste er sniðugt, ég skil það ekki, hef aldrei gert það en það er sniðugt.  Er það kannski pointið?

Hvað vita fílistear eins og ég... 

Btw.
Varúð Firefoxinn hrundi, þetta er safe í IE en refurinn eins og hann er hjá mér hrundi.


mbl.is Ragnar Helgi Ólafsson hlýtur verðlaunin Prix Möbius Nordica
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færri bílastæði!!

Þessa frétt á forsíðu Blaðsins vantaði myndskreytingu til að setja hlutina í samhengi.

 

 


Málsháttarkeppni Önnu Pálu

Minnir mig dálítið á þetta:

Smellið á myndina til að lesa.


Vatnsmýri fyrir lest.

Mér finnst það skrítið  í allri umræðunni um flutning innanlandsflugsins skuli enginn hafa bent á það að við vorum að auka kostnað okkar við flugrekstur um 1400 milljónir á ári.  Með yfirtökunni á Keflavíkurflugvelli þá hækkaði reikningurinn um þessa upphæð.  Það er einsog þessar 1400 milljónir árlega skipti bara engu máli?  Auðvitað þarf að taka tillit til þeirrar upphæðar þegar við erum að ræða þessi mál. 

Ef landið í Vatnsmýrinni er 25 milljarða virði og það má taka þann pening og búa til flugvöll á Lönguskerjum, hvers vegna má ekki taka þann pening og búa til lestartengingu milli Reykjavíkur Keflavíkur og jafnvel upp á Skaga eða Borgarnes?  Lestin átti að kosta ca. 25 milljarða, en gæti staðið undir sér á tilits til fjármögnunarkostnaðar. Fjármögnunarskostnaður er coveraður með Vatmýrinni. Það gefur auga leið að til lengri tíma litið hlýtur að vera ódýrara að reka einn völl frekar en tvo. Sérstaklega þegar það er haft í huga að um annan þeirra fara allt upp í 500 manns á dag! 

 Mér finnst það vera "No-brainer" að flugið fari allt til Keflavíkur.  Enda sigrum við að lokum,við Vatnsmýrarvinir, þegar maður skoðar hvernig stuðningur og andstaða við flugvöllinn skiptist eftir aldri þá eru algjör skipti milli eldri og yngri kynslóða.  Tíminn vinnur með okkur.

 

Reyndar á auðvitað að selja Vatnsmýrina og lækka skuldir borgarinnar um 25 milljarða á einu bretti. Síðan  ætti að huga að lestinni.  En það gerist auðvitað aldrei.  Sjórnmálamenn hugsa mikið frekar eins og iðnaðarráðherra þegar hún sagðist hlakka til að eyða þessum peningum. Það eru jól hjá pólitíkusum þegar þeir fá að sóa peningunum okkar.


Madchester

Hvað ætli að Icelandair hafi tapað mörgum milljónum á Manchester tónleikunum? Ekki einn maður sem ég hitti í gær hafði borgað sig inn og höllin var hálftóm! Núna situr einhver markaðsmaður sem átti þessa hugmynd og svitnar.  Tónleikarnir voru fínir. Við mættum seint það sem ég sá af Echo and the Bunnymen var fínt, Elbow voru snilld en Badly Drawn Boy olli vonbrigðum.  Satt að segja fannst mér hann eiginlega drepleiðinlegur.  Elbow voru eins og áður sagði snilld,aggressífir og rokkandi. Ég las á sínum tíma í dómi á nme.com  vað Elbow hefðu "a reputation as the drinking man's Coldplay" Það var nóg til að tékka á þeim og ég sé ekki eftir því. Leaders of the Free World og Cast of Thousands eru fínir diskar en "live" er bandið bara schnilld.  Læt hér fylgja tengil á Leaders Of The Free World (opnar Windows Media Player) 


lítill kall

Hann er lítill kall, maðurinn sem fyrir dómi í gær reyndi að skella skuldinni á látna manneskju.

Neitar að hafa stýrt skemmtibátnum.

 

Það skiptir reyndar ekki máli hver stýrði. Hann var skipstjóri og bar ábyrgð. Hún er öll hans.
Fólk dó og  ábyrgðin er hans. 

 


Myrtir í átökum við lögreglu?

Eitthvað er blessaður mogginn að rugla núna. Þegar fréttin er lesin þá sér maður að þessir óheppnu talibanar létust í átökum við lögreglu.  Án þess að vera viss um lögmæti aðgerða lögreglunnar þá er ég nokkuð viss um að morð hafi ekki átt sér stað þarna.

Þetta er bara spurning um skilning á málinu ylhýra.  Verra þegar fólk sem vinnur við að skrifa fréttir skortir hann. 

Annars las ég á hinum netfréttamiðlunum eitt besta dæmi um copy/paste fréttamennsku í langa tíð.

Í fréttinni af ráðningu Þórólfs Árnasonar sem forstjóra Skýrr segir:

Skýrr hf. er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni, með 200 starfsmenn og liðlega 2.200 kröfuharða viðskiptavini.

Enginn maður með nokkra sjálfsvirðingu myndi skrifa svona frétt.  Þetta er svo augljóslega afritað og límt  úr fréttatilkynningu frá Skýrr.  Mér dettur ekki einu sinni að skrifa svona vitleysu þegar ég skrifa fréttatilkynningar því ég hef gert ráð fyrir því að viðkomandi fjölmiðill myndi frekar krukka í textanum ef hann væri svona vitlaus.  En það er ljóst að allt rennur í gegn á sumum miðlum.

 --------------

Ég sé það á færslulistanum að ég hef breytt eftir á hverri einustu færslu.  Ég gleymi alltaf að flokka og svo vantar staf í orð eða eitthvað álíka.   Ekkert sinister, enda ekki slík skrif á ferli hér.


mbl.is Fjórir talibanar létust í átökum við lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband