Hver ályktaði?

í mars 2006

Það er fagnaðarefni að Íslendingum stafar ekki lengur ógn af Sovétríkjunum

Ekki einu orði var minnst á Austur-Þýskaland, Ceylon eða Efri-Volta!


Hver sagði...

 

Það er betra að segja sig úr stjórnmálaflokki heldur en að þurfa að kyngja eigin hugmyndafræði og skoðunum fyrir frama innan flokksins.

 og hvað mun viðkomandi hanga lengi í þeim flokki sem hann leitar frama?


Jón Baldvin í X-factor.

Yfirlýsingar Jim Beam um að síminn hans hafi líka verði hleraður minnir meira á mann sem skortir athygli en eitthvað alvöru mál. Getur ekki einhver bent honum á að áheyrnarprufur fyrir X-faktor eru á Hótel Nordica á laugardag. Þar gæti hann sefað þörf sína fyrir athygli og við þyrftum ekki að hlusta á sjúkann mann delera.
mbl.is Sími Jóns Baldvins hleraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um embættismenn

Miðlar Lifandi blogar um yðar einlægan í gær. Af því tilefni vil ég benda á að ég er ekki embættismaður, í stjórnarráðinu eru það eingöngu skrifstofustjórar og hærra settir sem eru embættismenn. (Nánar um hverjir eru embættismenn í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.) Kærur fari því vinsamlegast til hlýrri og skemmtilegri staða en niðurlanda og nágrennis, kærið mig til Sevilla eða San Sebastian!

Til viðbótar má segja að ritgleði eða leti hefur því ekkert með skyldur starfsmanna ríkisins að gera. Sannleikurinn er að það er helst hin eðlislæga leti heldur aftur af besserwissernum. Hannn brýst aftur á móti fram þegar sumir leggja höfuðið á stokkinn og bjóða mönnum að höggva. Framundan er fæðingarorlof og andvökunætur og þá gætu blogin orðið tíðari.

 


Róbert er frambjóðandi Björgvins...

Björn Ingi kom fram með kenningu í blogfærslu í dag um að Róbert Marshall sé frambjóðandi Margrétar og  fari fram með einhverri sérstakri velþóknun hennar. Það má vera, en ég held að málum sé öðruvísi farið, Róbert er frambjóðandi Björgvins G. Sigurðssonar! Ástæðurnar fyrir þessari ályktun eru eftirfarandi.

  • Maður sem biður um 1.-2. sæti gerir sér ekki vonir um að fá 1. sætið en biður um það í von um að fá nógu mikið af atkvæðum til að tryggja sér 2. sætið.
  • Róbert er eyjapeyji, ef hann hefði bara beðið um 2. sætið hefðu allir í eyjum sagt við hann: Flott við kjósum þá Lúlla í 1. sætið og þig í 2. Það hjálpar RM ekki nóg þar sem hann er að slást við Lúlla um annað sætið tapi sá rauði slagnum við Björgvin.
  • Bingi nefnir í bloginu sínu að Björgvin og Róbert voru eitt sinn samherjar í blaðamennsku á Vikublaðinu og ég veit að þar er vinskapur enn. Ef RM klýfur eyjaatkvæðin þá gæti Björgvin setið með pálmann í höndunum. Björgvin er óvitlaus og gerir sér grein fyrir stöðunni, hans fólk mun ábyggilega kjósa Róbert í 2. sætið.
  • Jón Gunnarsson er svarti péturinn í fléttunni, nema menn meti Árborg svo öfluga að hún trompi Eyjar og Reykjanesið.

Vandi strákanna er 40% jafnréttisreglan Samfylkingarinnar. Hvað gerist ef röðin verður BGS, JG, RM, LB og svo einhver kvennana. Verður Lúlli þá að fara í 6. sætið?

Svo getur verið að Róbert komist ekki á blað og þetta sé allt saman spuni. Mér hefur alltaf fundist að þegar vinstri menn skrifa um innanflokks intrígur Sjálfstæðisflokksins þá er það yfirleitt tómur uppsuni. Þessi orð hér að ofan gæti verið hægri hliðin á þeim pening.  

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband