Mánudagur, 11. desember 2006
persónuafsláttur hækkar um 14%
og er orðinn að ákvörðun Fjármálaráðherra hverju sinni.
Í nýsamþykktu frumvarpi fjármálaráðherra til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, með síðari breytingum kennir margra góðra grasa. Skattalækkananir á skattalækkanir ofan, hamingjufrumvarp fyrir fólkið í landinu. Það er þó eitt sem ég staldra aðeins við og það er breyting sem er orðin á 1. mgr. 67.gr laganna. Í lögunum segir:
Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir er orðast svo: Persónuafsláttur skal í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Fjárhæð persónuafsláttar skal birta með auglýsingu fjármálaráðherra fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
Ég sé ekki betur en að þarna sé verið í verðtryggja persónuafsláttinn?
Þetta er að vísu dálítið ógagnsæ lagasetning að því leytinu til að í lögunum mun standa upphæð sem síðan verður orðin allt önnur eftir einhver ár.
Annars lítur dæmið mjög vel út. Þarna er ekkert búið að gera ráð fyrir neinu nema bara heildarupphæð. ég tek auðvitað dæmið af 4 manna fjölsk. þar sem það er mín fjölskyldustærð.
!Þetta eru ekki nákvæmir útreikningar heldur bara spekúlasjón!
Í raun munu barnfjölskyldur fá meira, sjómenn fá einnig hlutfallslega meira osfrv. Ekki alveg einsog ég vildi helst gera en fjári jákvæðar lækkanir.
22.000.000.000 | skattalækkun |
300.000 | íbúar á íslandi |
73.333 kr. | skattalækkun pr. íbúa |
4 | í fjölskyldu |
293.333 kr. | samtals skattalækkun á fjlsk. |
24.444 kr. | skattalækkkun pr. mán pr. fjölsk. |
Kommarnir þurfa kannski á neyðar- og áfallahjálp að halda, en miðað við tillögur tillögur hér og hér í þessu máli þá finnst þeim vera skorið við nögl hjá Árna. Yfirboð einhver?
![]() |
Viljayfirlýsing um sjálfvirka neyðarhringingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:28 | Facebook
Athugasemdir
ég held að það komi ágætlega fram að þetta er leikur að tölum.
Friðjón R. Friðjónsson, 11.12.2006 kl. 13:59
Þetta er ekki verðtrygging en skref í rétta átt.
Þetta er kallað vístölubinding og er ekki á beinan hátt tengt verðbólgu.
T.d. myndi hækkun á olíu og tóbaki o.fl. hafa óbein áhrif til hækkunar á persónuafslætti óháð því hvort það er verðbólga eða ekki.
Hinsvegar gæti mögulega farið saman mikil verðbólga og lækkun á vísitölu neysluverðs og því er þetta ekki verðtrygging.
Benedikt Benediktsson (IP-tala skráð) 11.12.2006 kl. 15:29
Ég verð víst að bíta í það súra að viðurkenna að ég hafði rangt fyrir mér. Þetta er verðtrygging.
Ágætis kennslustund í að "bess" borgar sig ekki nema í 99% tilfella.
Benedikt Benediktsson (IP-tala skráð) 11.12.2006 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.