Karnabær kemur ekki aftur

Það er merkilegt að sitja hér vestur í Vostúni og lesa um Eldsvoðann, það snýr einhvern veginn allt öfugt þegar maður horfir heim. Í skipulagi Reykjavíkur er Kópavogsbúinn Jón Snæhólm pottur og panna, en hvar er Hanna? 

Til stendur að eyða tæplega 500 milljónum af almannafé í að kaupa lóðir, byggingarétt og byggingar, til hvers? Hvað á að koma inn í endurbyggðu húsin? Hvaða rekstur er sæmandi? Ekki verður það dansklúbbur, sjoppa og skyndibitastaður, borgin er ekki að eyða öllu þessu fé til þess. Hvað á að koma inn í húsin, fyrst var húsið í Austurstræti 22 íbúðarhús, svo einhvern tíma síðar fangelsi og svo prestaskóli. Kannski mætti gefa BDSM klúbbnum efri hæðina þar sem fangelsið var, þá væri farið nokkuð „nálægt upprunalegu horfi“.

Við hvað á svo borgarstjórinn þegar hann segist  vilja koma götumyndinni í sem upprunalegast horf? Á að rífa upp hellurnar?  Kannski vill hann bara fá húsin í það horf sem hann man? Mitt „upprunalega horf“ er Karnabær þar sem Pravda var og svo allskonar rekstur í Lækjargötu, það var bókabúð syðst á götuhæðinni, þar voru alltaf götuskilti sem auglýstu Ný dönsk blöð og einhvern tíma heyrði ég skiltið hafi gefið hljómsveitinni nafnið. 

austurstræti ys og lætiNú skal ekki misskilja mig sem ákafan talsmann þess að rífa allt gamalt (ég tengist Austurstræti 22 þeim böndum að hafa átt þar mörg ógleymanleg blakkát fyrir 12 árum eða svo og þykir vænt um húsið) en þessi fortíðardýrkun sem hefur leitt okkur í þá vitleysu að byggja Disney hús við elstu götu bæjarins, falsaða sögu. Hér vestra tröllríður þessi hugsun heilu borgunum. Öll hús skulu byggt í uppdiktuðum nýlendustíl, ég minnist þess að hafa heyrt sögu arkitekts sem er þekktur og vinsæll, hann stóð í málaferlum við bæjaryfirvöld um að fá að byggja hús úr 20. öldinni, enga fimleika eða vitleysisgang, bara stílhrein formfagurt hús. 

Ef húsin eru ónýt þá eru þau ónýt og fráleitt fyrir borgarstjóra (sem tók víst ekki við góðu búi fyrir ári) að nota 500 milljónir í nostalgíu.

Ég vona bara að einhver hnippi í Villa og segi honum að þótt hann byggi húsið þá kemur Karnabær ekki aftur og jafnvel þótt hann endurbyggi alla borgina í sem næst upprunalegu horfi þá koma gömlu dagarnir ekki aftur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Eins og talað úr mínum munni.  Endurbygging brunnra fornminja er della og á ekki við nema í undantekningatilfellum þegar hlutir eru smíðaðir fyrir söfn.  Á þetta horn þurfum við ekki safn heldur lifandi mannlíf og hús sem falla vel að umhverfinu og þarna á borgin ekki að vera að vasast í þessu.  

Alls ekki. 

Sveinn Ingi Lýðsson, 22.4.2007 kl. 15:08

2 identicon

Ég hef sjálfur ekki skilið þessa áráttu að færa allt í "upprunalegt horf".  Staðreyndin er sú að þessi hús verða rifin og byggja þarf ný hús.  Það er allt í lagi að byggja ný hús sem eru smekkleg og falla vel í götumyndina.  Það er óþarfi að byggja nákvæmlega eins og var.  Við eigum ekki að vera hrædd við að smíða okkur veruleika á forsendum samtímans. 

Thor Thorarensen (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 19:10

3 identicon

Flottast væri nú ef menn endurbyggðu Skansinn á Bessastöðum og settu aftur fallstykkin í hann.

Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 21:35

4 Smámynd: Björn Kr. Bragason

Tek undir þetta. Að vitaskuld þarf að passa að það verði ekki annað Iðuhúss-stórslys þarna, en að fara að eyða stórfé (eða stærra-en-ella-fé) í að byggja nákvæmar eftirlíkingar af þessum 19-aldar húsum sem brunnu er út í hött.

Björn Kr. Bragason, 22.4.2007 kl. 22:45

5 identicon

mig minnir reyndar að þýðingin ódauðlega sé "Vosbúðartún", er þó ekki viss. kv. af ströndinni.

sigm (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 06:29

6 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Mér finnst að það eigi að endurbyggja Astró eins og það var og breyta því í diskósafn. Snertið ekki diskókúluna.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 24.4.2007 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband