Vinstri grænn á villigötum

Baldvin RauðiBaldvin rauði bæjarfulltrúi vinstrigrænna á Akureyri á grein í Fréttablaðinu í dag. Við lestur hennar rifjast upp af hverju vinstri grænir eru ekki stjórntækir. Greinin er svo uppfull af samsæriskenningum, dylgjum og dellu að leitun er að viðlíka, það er helst að greinar Ástþórs Magnússonar líkist þessum vaðli.

Baldvin er máske mætasti maður, þekki hann ekki neitt en þruglið sem rekið er inn um lúguna hjá mér í boði Baugs er ótrúlegt.

Þrjár setningar eru kjarninn í greininni.

Almenningur á Íslandi er látinn borga hundruð milljóna í kostnað af sýndarréttarhöldunum, sem fram fara í skjóli æðstu ráðamanna sjálfstæðisflokksins, og hvað með skattana sem Baugur hefði þurft að greiða af hagnaði þeim sem hefði hlotist af viðskiptum þeim sem átti að gera sama dag og ráðist var inn í það fyrirtæki, hefði Baugur keypt Arcadia og selt með 300 milljóna hagnaði, eins og mr. Green gerði?

 Já, þetta er ein setning, það engu líkara en þeim rauða sé mikið niðri fyrir. Framhaldið kórónar þó málið.

Þá skatta, kannski nærri 40 milljarðar þá, vantar í ríkiskassann og maðurinn sem er ábyrgur fyrir þeim gjörningi hefur ráðið sjálfan sig í Seðlabankann, og er þar með sína samvisku, ætli margir af starfsmönnum Baugs, þori að tala óhikað í síma?

Ef ég skil þetta rétt þá telur bæjarfulltrúinn að 300 milljóna hagnaður skili 40 milljörðum í skatta og Davíð Oddsson skuldi þá? Hann nefnir ekki hvaða mynt hann er að nota í útreikningana en ég held að hann sé að nota peninga úr Íslenska efnahagsspilinu. Hvað símtöl starfsmanna Baugs koma þessum skattaútreikningum við, skil ég ekki en næsta setning á kannski að skýra það.

Njósnadeild Sjálfstæðisflokksins gæti verið á næstu grösum.

Hvaða njósnadeild er það? Er það sú sem Guðni Th. Jóhannesson 200px-Hammer_and_sickle.svgfrábiður sér að hafa búið til og vísar á Stöð 2 um fæðingu þess fyrirbæris? Er Baldvin ekki bara að gera það sem gömlu herrarnir hans í Kreml tíðkuðu, að ljúga nógu oft og lengi og þá verður lygin hluti af sögunni? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég rak einmitt augin í þetta í morgun. Og verð alltaf jafn undrandi þegar sósíalistar og aðrir þeir sem kenna sig við vinstrið, snúast á band með auðvaldinu. Merkilegur skratti.

Margrét (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 14:03

2 identicon

Sorry en þú átt grein hér á mbl.is sem er alveg sæmbærilegt grein í fréttablaðinu og það er á mörkunum að stafsetning sé boðleg hvað þá að ná einhverju samhengi í þessari grein þinni.. Þannig að ég segi þér að líta aðeins í kringum þig áður en þú lætur svona nokkuð frá þér.

Einar (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 17:59

3 Smámynd: Friðjón R. Friðjónsson

Einar
Ég á örugglega mörg blog sem eru samhengislaus, það er oft sem ég á samhengislausar stundir, oftast með sjálfum mér.

Ég fann tvær til þrjár stafsetningarvillur sem ég hef leiðrétt. Gagnrýni mín á grein Baldvins er ekki á formið heldur innihaldið. Jú, ég geri góðlátlega  grín að setningu sem telur rúm 400 slög og er því svo löng að birta mætti hana sem sjálfstæða grein. En það er hvað hann skrifar, ekki hvernig sem er aðalatriðið.

En ætti ég ekki að líta í eigin barm frekar en í kringum mig ef ég þarf að bæta vinnubrögðin eða ritskoða sjálfan mig? 

Friðjón R. Friðjónsson, 15.2.2007 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband