Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Laugardagur, 3. febrúar 2007
Bakkafullur lækur
Það ber kannski í bakkafullan lækinn að gera athugasemdir við forsíðu Moggans í gær og dóminn sem var forsenda forsíðunnar makalausu. Í fyrsta lagi var þessi forsíða fráleit, það er útúr kortinu að persónugera málið á þennan hátt. Dómarar eru alveg nógu skelkuð stétt til að það bætist ekki við að þeir þurfi að óttast reiði Moggans. Við ætlumst til þess að starfmenn réttarins starfi hlutlægt, við teljum ekki að dómarar séu gengir í lið með þeim sem þeir taka afstöðu með frekar en við teljum að lögmenn séu eins og skjólstæðingar sínir. Sveinn Andri er ekki glæpon og okkur finnst ekkert athugavert við að lögmaður sakbornings í umfangsmesta máli síðari tíma sæki kjarabætur fyrir dómara.
Gyðja réttlætisins er blind.
Hinsvegar finnst mér ekkert að því að almenningur láti sig þessi mál varða og síni ánægju eða óánægju í verki. Hrafn hvetur fólk til að senda tölvupóst til hæstaréttar, það er ekkert að því (mér er reyndar til efs að hann skili sér þar sem lögfræðingar eru ein tölvuólæsasta stétt landsins).
Almennt mætti fólk gera meira af því að láta skoðanir sínar í ljós, láta þingmenn vita af því að fylgst er með þeim þegar þeir hækka skatta og sóa fé okkar. Láta ráðherra vita að þeir þurfi að fara betur með fé okkar og slútta þurfi partýinu í utanríkisþjónustunni. Þá skilur milli þeirra sem eru of taugaveiklaðir til að sinna þessum störfum og þeirra sem geta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 2. febrúar 2007
tveir punktar
á meðan beðið er eftir næsta kafla í stóra Icelandair málinu er ekki úr vegi að benda mogganum á að hvernig síðustu kosningar fóru í raun og veru. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tæp 34% ekki 39%
Úrslit alþingiskosninga 10. maí 2003 eftir kjördæmum | |
Hlutfallsleg skipting, % | |
Alls | |
Framsóknarflokkur | 17,7% |
Sjálfstæðisflokkur | 33,7% |
Frjálslyndi flokkurinn | 7,4% |
Nýtt afl | 1,0% |
Samfylkingin | 31,0% |
Framboð óháðra í suðurkjördæmi | 0,5% |
Vinstri hreyfingin - grænt framboð | 8,8% |
Heimild: Hagstofa Íslands
Að öðru
Þórarinn Eldjárn byrjaði að bloga fyrir stuttu og reit þennan ágætis punkt:
Síendurtekið efni er gamla klisjan um meint yfirráð Sjálfstæðisflokksins yfir Ríkisútvarpinu og öllu sem þar heyrist og sést og fer fram. En í hverju felast þau yfirráð? Hvað er útvarp annað en fólkið sem starfar þar og við heyrum í dags daglega? Ég minnist spjallþáttar sem ég hlustaði á fyrir fáeinum misserum. Þar voru nokkrir eindregnir andstæðingar ríkisstjórnarinnar að venju samankomnir fyrir hádegi á laugardegi til að ræða landsins gagn og nauðsynjar en þó einkum ógagn og ónauðsynjar. Talið barst að Ríkisútvarpinu og einn kjaftajötnanna nefnir að nú sé svo komið að það þurfi flokksskírteini í Sjálfstæðisflokknum til að fá þar inni. Allir viðstaddir flissuðu samþykkjandi að þessum almæltu sannindum, þar hittirðu nú aldeilis naglann á höfuðið...
En ég, saklaus hlustandinn heima, sagði við sjálfan mig: Ja, ljótt er að heyra, en er þetta virkilega svona? Ég hlustaði og hlusta enn mikið á Rás eitt og fór að hugsa: Í hverjum heyrist í útvarpinu? Hverjir ERU Rás eitt? Á þeim tíma reyndust það eftir stutta minnisleit einkum vera eftirtaldir, allt saman frábærir, lifandi og áhugasamir útvarpsmenn: Ævar Kjartansson, Arthúr Björgvin Bollason, Jórunn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson, Anna Kristín Jónsdóttir, Leifur Hauksson, Eiríkur Guðmundsson, Hjálmar Sveinsson, Jón Ásgeir Sigurðsson, Gunnar Gunnarsson, Friðrik Páll Jónsson, Steinunn Harðardóttir, Una Margrét Jónsdóttir...
Ég man að mér þóttu það óvænt og váleg tíðindi að allt þetta ágæta fólk skyldi vera gengið í Sjálfstæðisflokkinn.
Ef ég heyri orðið bláskjár aftur þá gríp ég til ofbeldis.
![]() |
Vinstri grænir mælast með 21% fylgi í nýrri Gallupkönnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Blogið virkar!
Ég má til með að gera smá hlé á síðasta heila vinnudeginum til að henda þessu inn.
Í morgun barst mér þessi póstur frá Icelandair, ég tek mér það bessaleyfi að birta hann:
Kæri Friðjón,
Bestu þakkir fyrir tölvupóstinn sem barst til þjónustueftirlits Icelandair varðandi skatta og gjöld. Við biðjumst velvirðingar á því hve dregist hefur
að svara þér.
Hjálagt sendi ég svar frá Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingarfulltrúa Icelandair, við fyrirspurn þinni.
Með kveðju,
Rut Júlíusdóttir
Þjónustueftirliti
Hækkun á þessum lið "Skattar og gjöld" á undanförnum misserum á sér þá einföldu skýringu að Icelandair, líkt og önnur flugfélög brugðust við
tvöföldun eldsneytisverðs með því að leggja eldsneytisgjöld á hvern seldan farseðil. Búist var við því að um tímabundna hækkun væri að ræða og því var þessi kostnaður ekki settur beint inn í farmiðaverðið heldur haldið sér. Nú tæpum tveimur árum síðar eru engin merki þess að eldsneytisverð lækki og verði aftur það sem það var.
Því er löndunum í kringum okkur, líkt og hér á landi, vaxandi þrýstingur á að skattar og "gjöld" (charges, surcharges) verði felld inn í það verð sem birtist fyrst viðskiptavinum flugfélaga og ferðaskrifstofa á netsíðum þeirra. Sá háttur sem hefur verið hafður á undanfarin misseri er að birta fyrst fargjald án slíkra gjalda, en láta það bætast við á síðari stigum. Af samkeppnisástæðum hafa flugfélög og ferðaskrifstofur fylgt fordæmi hvers annars, uns þessi hefð virðist hafa skapast. Þetta fyrirkomulag er á undanhaldi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa tekið fyrir það nú þegar, og í Skandinavíu gáfu yfirvöld fyrirmæli um að þessir liðir skyldu felldir inn í það heildarfargjald sem birtist fyrst neytendum á vefsvæðum þann 1. janúar
sl..
Við hjá Icelandair fögnum þessum skýru fyrirmælum frá yfirvöldum í þessum löndum og förum að þeim í einu og öllu. Á Íslandi ber fyrirtækjum samkvæmt íslenskum lögum að tilgreina hvarvetna, svosem í sölukerfum og í auglýsingum heildarverð keyptrar þjónustu og því höfum við lagt til að samkeppnisyfirvöld hér á landi fari að dæmi yfirvalda í nágrannalöndunum og gefi ákveðin fyrirmæli til allra markaðsaðila hér um birtingu heildarverðs á netinu með vísan til þessara laga. Icelandair mundi fagna slíkum fyrirmælum og fara að þeim, svo fremi sem allir markaðsaðilar séu
jafnsettir.
Við teljum að með þessum hætti vinnist það sem að er stefnt - neytendur fá nákvæmari og betri upplýsingar, fyrirbærið "gjöld" verður í raun að innanhúsmáli hjá hverju fyrirtæki því það birtist aldrei neytandanum sem sér liður, og markaðsaðilar eru jafnsettir - og þetta væri hægt að gera strax.
Takk fyrir svarið, jákvæð viðhorf þarna í orðum Guðjóns, en það er bara eitt lítið en. Heldur einhver að ég hefði ekki fengið þetta svar ef kvörtun mín hefði ekki birst á forsíðu mbl.is?
Ok kannski eru en-in fleiri.
Guðjón gefur í skyn að skattar og gjöld hafi verið jafn há á leið frá USA en hafi nú verið felld inn í verðið. Það má vera ég ætla samt að biðja mágkonu mína um að senda mér upplýsingar um samsetningu fargjalds og "skatta og gjalda" síðustu 3-4 skipti sem hún kom hingað í heimsókn. Sjáum hvað setur.
Svo læðist að mér ein hugsun það er 20% afsláttur af farmiðum barna 2-11 ára, með því að hafa eldsneytisgjaldið fyrir utan farmiðagjaldið þá sparar flugfélagið sér 20% af eldsneytisgjaldshækkuninni. Það gæti verið dágóð upphæð þegar á heildana er litið.
Að síðustu þá er þessi yfirlýsing um Icelandair um að þeir myndu glaðir birta rétt verð ef ríkið færi fram á það og aðrir gerðu það líka. Minnir þetta ekki á stjórnmálaflokk sem heimtar að opnun bókhalds stjórnmálaflokka en neitar að gera það sjálfur fyrr en aðrir hafa verið skyldaðir til þess. Svar mitt til Guðjóns er þá: Gjör rétt - þol ei órétt.
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Er fólk fífl? III
í framhaldi af orðum gærdagsins og ýmsum athugasemdum sem gerðar voru þá velti ég fyrir mér einu máli í viðbót varðandi markaðssetningu Icelandair á netinu.
Hvernig er bókunarvél flugferða hjá icelandair.is undanskilin reglum um verðmerkingar? Í reglum um verðmerkingar nr. 580/1998 (PDF-skjal) er skýrt kveðið á um að skylt er að verðmerkja vöru og þjónustu með söluverði og ef annar kostnaður bætist við söluverðið þarf að taka það sérstaklega fram.
Aðferð Icelandair að sýna verð fyrir "skatta og gjöld" í bókunarvél sinni er ekki ósvipuð þeirri ef verslun sýndi verðmerkingar úti í glugga án virðisaukaskatts, síðan þegar þú ert búinn að velja þér vöru á verði X þá færðu að vita við kassann að verðið er þetta 50% hærra vegna "skatta og gjalda". Spyrjir þú hvers vegna og hvað felist í "sköttum og gjöldum" segist sá á kassanum ekert vita. En þér sé velkomið að senda tölvupóst, póstinum verður ekki svarað.
Árið 2003 féll dómur í Hæstarétti þar sem að grunni var verslunareigandi hér í borg var dæmdur til sektar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar. Má vefverslun eins og bókunarvél Icelandair vera með ófullnægjandi verðmerkingar?
Og ef Icelandair ber því fyrir sig að þetta verði að vera svona vegna einhverra reglna eða mekkanísma í bókunarvél eða einhvers þess háttar þá má spyrja hversvegna Expedia og orbitz geta boðið upp á verð á flugum með Icelandair með "sköttum og gjöldum" inniföldum?
PS.
Einihvernveginn held ég að vildarpunktarnir mínir muni þurrkast út vegna undanfarna daga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Er fólk fífl? II
Ég var að fárast yfir "sköttum og gjöldum" Icelandair og er frekar misboðið að þurfa að borga tæplega 45 þúsund krónur í "skatta og gjöld" vegna ferðar fjölskyldunnar til USA.
Ef ég ætla svo að fljúga sömu leið frá USA til Íslands þá lýtur dæmið öðruvísi út.
2x | adult(s) | 84,11$ | 168,22$ |
1x | child(ren) | 72,25$ | 72,25$ |
1x | infant(s) | 49,7$ | 49,7$ |
290,17$ | |||
20.311,9 Kr. |
Er ekkert eldsneytisgjald á leiðinni USA-Ísland bara Ísland-USA?
Hvernig þessi "skattar og gjöld" eru samsett er engin leið að vita fyrir almenning, veit það einhver þarna úti? Í lögum um flugmálaáætlun og fjáröflun til flugmála 2. kafla er fjallað um flugvallaskatt og varaflugvallagjald það gjald eru heilar 980 kr og á það að vera helmingi lægra fyrir börn 2 til 12 ára. Hvernig stendur á því að skattar og gjöld af flugi fyrir litlu fjölskylduna mína er víðsfjarri þess sem getið er í lögum?
"Skattar og gjöld" hljóma eins og opinber gjöld, að hver króna renni til opinberra aðila. Ég held að Icelandair séu að fela hluta flugfarsins inni í þessum tölum. Ætti "skattar og gjöld" fyrir barnið ekki að vera ca. 6400 kr. ekki 13.045. kr. ef lagaákvæðið um helmingsgjald fyrir börn ætti við?
Ég sendi bréf til Icelandair með nokkrum spurningum um "skatta og gjöld" fyrir nokkrum vikum síðan. Ekkert svar.
Flott þjónusta!
Laugardagur, 27. janúar 2007
Er fólk fífl?
Fyrr í vetur var í fréttum umfjöllun um "skatta og gjöld" flugfélaganna, moggin fjallaði um það hér og Sævarr blogaði um fréttirnar hér. En af einhverjum ástæðum er maður orðinn ónæmur fyrir fréttum af okri Icelandair, þar til maður reynir það á eigin skinni.
Nýverið keypti ég miða fyrir fjölskylduna til USA og "skattar og gjöld" fyrir 2 fullorðna, 1 barn og 1 ungabarn eru 44.275 kr.!
2x | fullorðinn/nir | 13.870 | 27.740 kr. |
1x | barn/börn | 13.045 | 13.045 kr. |
1x | ungbarn/börn | 3.490 | 3.490 kr. |
samtals fyrir alla farþega | 44.275 kr. |
Fyrir 18 mánuðum fór konan mín til USA þá voru skattar og gjöld á flugið 9.500 kr núna eru þeir 14.000 kr. pr flug. Ég hringdi í Icelandair til að spyrja hverju sætti og stúlkan sem ég talaði við þar sagði mér að stærstur hluti hækkunarinnar væri "eldsneytisgjald" sem Icelandair leggur á sjálfa sig!
í fréttinni frá því í haust segir Guðjón Arngrímsson:
"Við höfum, líkt og flest önnur flugfélög, lagt á eldsneytisgjald á undanförnum misserum, til að mæta gríðarlegum olíuverðhækkunum síðastliðin tvö ár. Sum flugfélög hafa bætt þessu inn í verð, önnur halda þessu gjaldi til haga eins og við. Þetta hefur margoft komið fram í fjölmiðlum, er að sjálfsögðu hluti af auglýstu heildarverði farseðla,"
nú hefur olíuverðlækkað á undanförnum mánuðum en hafa "skatta og gjöld" gert það?
Það er nefnilega eins og Icelandair vinni eftir forsendunni fólk er fífl og á ekkert betra skilið en að borga meira.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.1.2007 kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 26. janúar 2007
Heppinn Geir
Ein skemmtileg tilviljun henti í vikunni. Að kvöldi 23. jan. birtist frétt á Stöð 2 um viðtal TV2 í Noregi við Geir Haarde þar sem hann var spurður um evrópumál, viðtalið var frá deginum áður. Fyrir utan að svara spurningunni um ESB skýrt og afdráttarlaust og svara þannig ESBulli kratanna þá kom eins og punktur yfir i-ið, skoðannakönnun daginn eftir sem sýndi einstaklega lítinn áhuga almennings á inngöngu.
Þrátt fyrir að Samtök iðnaðarins hafi eytt milljónum af illa fengnu fé í áróður, þrátt fyrir að sameiningarflokkur alþyðunnar rembist eins og rjúpa við staur og þrátt fyrir að Eiríkur Bergmann og Auðunn Arnórsson hafi gefið okkur "fagleg" álit á mikilvægi inngöngu þá skellir almenningur skollaeyrum við guðspjallinu.
Það skyldi þó aldrei vera að almenningur kjósi að búa í velmegun og hagvexti?
Að lokum
Geir var góður í norska sjónvarpinu, þetta stutta skot fannst mér vera ein besta sjónvarpsframkoma Geirs lengi. Það er ekki skrítið að norskan fari honum en það er eitthvað við fjöltyngt fólk sem mér finnst traustvekjandi.
---------------------------
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2007 kl. 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 24. janúar 2007
Björgvin G í hægri sveiflu
"Ríkisrekstur á að heyra sögunni til á samkeppnismarkaði"
Sagði Björgvin G. Sigurðsson á Alþingi í dag. Þar höfum við það, þá er það ákveðið. Mikið er ég feginn að þetta er komið á hreint. Ár eftir ár höfum við frjálshyggjupúkarnir hamast á þessum orðum eins og möntru í einu eða öðru formi. "Ríkisrekstur á að heyra sögunni til á samkeppnismarkaði"
Núna höfum við fengið nýjan bandamann Björgvin G. Sigurðsson. Í dauða mínum átti ég von á honum en maður tekur öllum villuráfandi sauðum fegins hendi. Það hefur verið eftirtektarvert hvernig hann hefur verið að færast á okkar línu undanfarið, hann kaus gegn tóbaksólögunum og hann er farinn að berjast fyrir skólagjöldum í opinbera háskóla.
En hver er skýringin á þessari umbyltingu? Ég kíkti inn á vef alþingis og skoðaði myndina af Björgvini og þegar ég opnaði hana í photoshop og lýsti aðeins bakgrunninn þá kom þetta í ljós.
Þetta skýrir allt er það ekki?
Ég bíð nú eftir harðri baráttu frá okkar manni á þingi fyrir því að Rás 2 heyri sögunni til. Já og stuðningi við óheftan innflutning allra landbúnaðarafurða því stuðningur ríkisins við einn aðila umfram annan í samkeppnisrekstri er inngrip, dulbúin ríkisrekstur.Velkominn Björgvin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 22. janúar 2007
Valdimar segir sig frá þingmennsku!
Nú bíður þjóðin í ofvæni eftir því að flokksfélög Frjálslynda flokksins álykti um að Valdimar Leo eigi að segja sig frá þingmennsku. Miðað við það sem gekk á sumarið 2005 þegar Gunnar Örlygsson gekk úr Frjálslyndum til Sjálfstæðisflokksins þá hlýtur prinsipp fólkið í Frjálslynda flokknum að hafna inngöngu Valdimars.
Haustið 2005 skrifaði Margrét Sverrisdóttir hin óspjallaða grein í Morgunblaðið (einnig birt á xf.is)
Þingsætin tilheyra því flokkum en ekki einstaklingunum sem boðnir eru fram í nafni flokkanna.
Þess vegna særir það réttlætiskennd kjósenda þegar þingmaður, sem nær kjöri vegna stuðnings við þann flokk sem hann er fulltrúi fyrir, fer með umboð kjósenda eins og honum sýnist
Hvað segja Frjálslyndir nú? Hvar eru fjölmiðlamennirnir sem fáruðust yfir skiptum Gunnars? Hvers vegna spyr enginn Guðjón A. hvað sé breytt?
![]() |
Valdimar gengur til liðs við Frjálslynda flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 19. janúar 2007
Kálfurinn og ofeldið
Það andrúmsloft leyndarhyggju, sem áður var ríkjandi gagnvart þjóð, Alþingi og utanríkismálanefnd þegar að varnarmálum kom er ekki það vinnulag sem ég vil viðhafa. Raunar verð ég að játa að mér hefur oft fundist pukur af þessu tagi fremur einkenna karlana, sem hafa tilhneigingu til að leiða málin til lyktar í reykfylltum bakherberjum.[sic]
Af hverju hún kýs að hnýta í fyrrum formann Framsóknarflokksins er skil ég ekki. En þegar ofangreind orð bætast við yfirlýsingu um mikla fjölgun kvenna í friðagæslunni þá eru áhugaverðir hlutir séu að koma fram. Það kæmi mér ekki á óvart að Framsókn muni byggja veigamikinn hluta kosningabaráttu sinnar á því að hún sýnir "jafnrétti" í verki. Svo lengi sem VG og Frjálslyndir beygi ekki útaf stefnu sinni þá verður Framsóknarflokkurinn eina framboðið sem hefur konur sem oddvita lista í helming kjördæma. Nú þegar er helmingur ráðherra framsóknar konur og það er erfitt að koma auga á þrjár konur í Sjálfstæðisflokkki eða Samfylkingu sem eiga skýrt tilkall til ráðherrasætis. Samfylkingin sem þykist vera mikill jafnréttisflokkur er með karla í öndvegi í öllum kjördæmum nema einu!
Þegar Valgerður er talar svona um karlapukur og afléttir leynd er hún líka að gefa tón um hvernig framsókn vilji skapa sér sérstöðu. Hinsvegar er ég ekki viss um að hún geti verið trúverðug þegar hún tekur sér orð eins og pukur í munn. Það eru alltof margir sem setja til dæmis spurningamerki við kaupin á Búnaðarbankanum þegar Valgerður var iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Í athugasemdum hér á bloginu og í tölvupóstum hafa margir haft á orði að pukrið þá hafi verið sýnu verra en í utanríkisráðuneytinu þegar fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins réð þar ríkjum. Þetta skot Valgerðar á fyrrum formann sinn sýnir enn og aftur að sjaldan launar kálfurinn ofeldið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)