Sunnudagur, 10. desember 2006
þegar kvennalistinn var stofnaður...
...fyrir 10 árum (samkvæmt stjörnublaðamanninum Sigríði Dögg Auðunsdóttur í Silfrinu í dag) var það til að ýta jafnréttismálum í forgrunn og gömlu kallarnir sem stjórnuðu gömlu flokkunum áttuðu sig á því að eina leiðin til að fá atkvæði kvenna var að hafa konur á lista. Þetta var samliking sem hún notaði til að færa rök fyrir því að umhverfismál eru hin nýju jafnréttismál!
Fyrir utan ævintýralega tímaskekkju sem munar 13 árum (fyrir 10 árum var Kvennalistinn nær dauða en lífi) þá er ályktun sda röng. Allstaðar í hinum vestræna heimi hefur konum á þjóðþingum fjölgað undanfarin ca 30-40 ár. Það eru þjóðfélagsbreytingar sem eiga ætt sína til umbyltinga á sjöunda áratugnum sem hafa skilað þessum aukna jöfnuði. Hér á lendi hefur konum gengið ver en hjá frændþjóðum okkar að komast inn á þing. Engan kvennalista áttu þær þjóðir. Það má frekar halda því fram með samanburðar rökum að kvennalistinn hafi haldið aftur af konum fækkað tækifærum þeirra.
Líklega var þetta með 10 árin mismæli en hugsanavillan er alger.
-Uppfært-
Ég bæti hér við 3 myndum sem ég tel að styðji mál mitt. Fyrri tvær eru fengnar frá Jafnréttisstofu á þessari síðu
Sú fyrsta sýnir þróun á fjölda sveitarstjórnarmanna á tæplega 50 ára tímabili.
Önnur sýnir þróun fjölda þingmanna. Það er rétt að fjöldi kvenna á þingi tekur stökk þegar kvennalistinn kom fram en eins og ég hef sagt þá tel ég að þróunin hefði verið líkari þeirri sem var á sveitarstjórnarstiginu þótt Kvennalistinn hefði ekki komið fram.
Svo er reyndar áhugavert að skoða stöðu íslands gagnvart örðum þjóðum sem við berum okkur gjarnan saman við. Taflan að neðan er ný og frá Evrópusambandinu. Við erum í 7. sæti, ég sem hélt að hér væri allt á heljarþröm!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Talsmaður neytenda
er skrítin skepna. (Þá er ég að tala um embættið ekki Gísla Tryggvason sjálfan.) Það að enginn hafi skellt uppúr þegar framsóknarráðherrann og bóndinn Valgerður lagði fram frumvarp um talsmann neytenda er furðulegt. Ráðherra flokks sem hefur markvisst í 90 ár miðboðið og misnotað neytendur býr til embætti talsmanns fórnarlamba sinna.
Þess vegna varð að velja rétt í sætið. Ef einhver er undrandi á því að Valgerður Sverrisdóttir frá Lómatjörn í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð hafi skipað Gísla Tryggvason Gíslasonar rektors MA frá 1973-2003, þá er viðkomandi lítt versaður í pólitík Framsóknarflokksins. (Hér er listinn yfir þá sem sóttu um embættið, er einhver meiri norðanmaður þarna eða með viðlíka tengsl í kjördæmi ráðherrans?)
Núnar er ég hinsvegar að velta fyrir mér talsmanni neytenda hinum fyrsta, Gísla Tryggvasyni. Hvernig getur hann verið trúverðugur talsmaður neytenda eftir að hann gaf kost á sér í pólitík. Núna hljóta allar hans yfirlýsingar verða skoðaðar í ljósi metnaðar hans á þeim vettvangi.
Hvernig er t.d. hægt að skoða eftirfarandi yfirlýsingu annað en pólitíska yfirlýsingu og skoðun Gísla Tryggvasonar?
Þar sem ég tel það ekki hlutverk talsmanns neytenda að hafa skoðun á því hvert eignarhald fyrirtækja á markaði skuli vera tel ég að öðrum kosti koma til álita sem illskárri kost að horfið verði frá yfirlýstri markaðsvæðingu raforkumarkaðar og komið á opinberri verðstýringu á markaði með þá grundvallarvöru sem raforka er."
Reyndar dettur manni í hug orðin kálfur og ofeldi, eða kannski er þetta bara svekkelsi að koma svona í bakið á Jóni og Valgerði?
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Hræðist ekki...
Pólitíkin er enn helblá þótt útlitið sé vinstigrænt.
Var að dunda mér við í gærkvöldi við að teikna upp aðeins jólalegra útlit fyrir hátíðarnar. Boðskapurinn verður enn rex og pex íhaldspungs.
Ég er ekki mikið jólabarn eins og kannski má sjá, ég er ekki að missa mig í föndrinu. Það bætist kannski í þegar líða tekur að jólum.
Band of Horses er búið renna í Ipoddinum og tölvunni undanfarið, setti inn nýtt lag The Funeral
eðalmúsík einn desti diskur þessa árs. Lagið tengist jólunum ekkert.
Im coming up only to hold you under
Im coming up only to show you wrong
And to know you is hard and we wonder
To know you all wrong, we were
At every occasion I'll be ready for a funeral
At every occasion once more is called a funeral
Every occasion I'm ready for the funeral
At every occasion one brilliant day funeral
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Leynisjóðir listamanna - og vina þeirra
Verandi bullandi kverúlant hef ég verið að velta fyrir mér fyrirbæri sem heitir Innheimtumiðstöð gjalda. Aðaltilgangur IHM er að annast innheimtu gjalda af tækjum, diskum, plötum eða öðrum hlutum til hliðrænnar eða stafrænnar upptöku. Það er aukaskattur á Ipod og auðum geisladiskum til að standa straum af þessum sjóði.
Tollayfirvöld sjá um að innheimta gjöldin fyrir IHM samkvæmt sérstöku samkomulagi. Í ríkisreikningi fyrir árið 2005 (hvet alla til að skoða þetta merka rit) kemur fram liðurinn höfundarréttargjöld upp á níutíu og tvær milljónir níuhundruð fimmtíu og tvö þúsund (92.952.000). Að öllum líkindum er sjóður IHM þessar rúmu 90 milljónir en IHM segir ekkert um hve mikið af almannafé þeir hafa á milli handana. Þannig að þettta er tóm ágiskun.
Um það bil 80% af skattfé IHM rennur tli samtaka tónlistarrétthafa STEF og SFH samkvæmt skýrslu stjórnar Myndstefs.
STEF er nokkuð þekkt fyrirbæri og hefur yfir miklu meiri fjármunum en þeim sem IHM mjólkar til þeirra, en SFH er samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda og hlutverk sambandsins er að starfa sem innheimtusamtök tónlistarflytjenda og hljómplötuframleiðenda.
Það er áhugavert að þar hafa tveir lögmenn, Eiríkur Tómasson og Gunnar Guðmundsson komið sér fyrir sem innstu koppar í búri. Lagaprófessorinn er í 50% starfi hjá STEF og símanúmer SFH er skráð á Gunnar Guðmundsson hdl, fulltrúa SFH í stjórn IHM. Eiríkur er formaður IHM og Gunnar varaformaður. Hvað fá þeir fyrir sinn snúð? Láta þeir sér nægja að fá greiðslur frá samtökunum sem þeir eru í forsvari fyrir? Sem reyndar hafa samskonar sjálftökurétt en enga upplýsingaskyldu.
Bæði samtökin vísa til laga með réttlætingu á tilveru sinni. SFH vísar til að sambandið er stofnað með heimild í 47. grein höfundalaga nr. 73/1972 og STEF starfar samkvæmt sérstakri löggildingu frá menntamálaráðuneytinu.
Það sem mér finnst áhugavert er að spyrja hvernig stendur á því að einhverjum aðilum úti í bæ er veittur aðgangur að almannafé en upplýsingaskylda þeirra virðist engin?
Mikið væri nú gaman ef einhver reyndi að ná utan um þessa peningahít. IHM veltir 100 milljónum, STEF og Fjölís eru líkast til með aðrar 100 milljónir milli handana (það er mjög varlega áætlað, Fjölís fær 38 milljónir bara frá grunnskólunum) en enginn svarar til um hvað verður um þetta almannafé.
Hver getur spurt IHM hvað varð um peningarna sem frúin í Hamborg gaf?
PS.
Þegar IHM var sett á stofn til að reyna að tryggja sem víðtækasta samtrygginu og margir fengu bita;
- STEF (Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar),
- SFH (Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda),
- RSÍ (Rithöfundasamband Íslands),
- Hagþenkir, (Félag höfunda fræðirita og kennslugagna),
- BÍ(Blaðamannafélag Íslands) SKL (Samtök kvikmyndaleikstjóra)
- F-SÍK (Framleiðendafélagið-Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda)
- FÍL (Félag íslenskra leikara)
- FK (Félag kvikmyndagerðamanna),
- Myndstef (Samband íslenskra myndlistarmanna, Ljósmyndarafélag Íslands, Félag íslenskra teiknara, Félag grafískra teiknara, Arkitektafélag Íslands, Félag leikmynda- og búningahöfunda.)
- Félag leikstjóra á Íslandi.
- FÍH, Félag íslenskra hljómlistarmanna
- SKL, Samtök kvikmyndaleikstjóra
![]() |
Fjárlagaumræða framundir miðnætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. desember 2006
Írak
Andrés Magnússon bendir réttilega á í pistli sínum hverskonar della veður uppi í umfjöllun um Írak og Kofi Annan sérstaklega. Kofi Annan missti alla von um að geta verið trúverðugur þátttakandi í umræðu um Írak þegar upp komst um að sonur hans var einn innstu koppa í búri olíusvindlsins hér um árið.
Auðvitað saknar Annan Saddams, skyldmenni Annan efnuðust stórlega á einræðisherranum.
Svo er ég ekki viss um að íbúar Kúrdahérðana myndu samþykkja yfirlýsingar Annan. Þar var fólk myrt á kerfisbundinn hátt af yfirvöldum, nú er nokkuð kyrrt á svæðinu, amk ekki meiri borgarastyrjöld en svo að fjárfestar renna hýru auga til svæðisins og eru byrjaðir að byggja.
Þá vil ég endilega benda á pistil Steinars Þór Sveinssonar frá Írak sem birtist á hrafnasparkinu þar segir ma:
Upplýsingar sem bárust til Bandaríkjamanna og Breta voru því mjög misvísandi. Fjölmargir Írakar, og margir hverjir háttsettir, trúðu því að Saddam réði yfir gereyðingarvopnum. I nýútkominni bók, Inside the Jihad, kemur fram að Al Queda-liðar vildu að ráðist yrði á Írak. Stríð þeirra tengist ekki beint löndum heldur battlespace" og innrás í Írak gæfi þeim vígvöll til að berjast á. Í Inside the Jihad kemur fram að Al Queda-liðum var gert að segja að samtökin væru við það að kaupa gereyðingarvopn af Saddam ef þeir næðust og yrðu yfirheyrðir. Ein hliðin á teningnum var að ekki fundust gereyðingarvopn í Írak, og allir voru sammála um að það væri eins og að leita að nál i heystakki. Hin hliðin var sú sem menn sannarlega þekktu á Saddam og þær upplýsingar sem njósnarar fengu frá hans eigin háttsettu herforingjum, sem trúðu að hann ætti gereyðingarvopn, og handteknum Al Queða-liðum sem sögðu að samtökin væru við það að kaupa slík vopn af honum.