Föstudagur, 19. janúar 2007
Kálfurinn og ofeldið
Það andrúmsloft leyndarhyggju, sem áður var ríkjandi gagnvart þjóð, Alþingi og utanríkismálanefnd þegar að varnarmálum kom er ekki það vinnulag sem ég vil viðhafa. Raunar verð ég að játa að mér hefur oft fundist pukur af þessu tagi fremur einkenna karlana, sem hafa tilhneigingu til að leiða málin til lyktar í reykfylltum bakherberjum.[sic]
Af hverju hún kýs að hnýta í fyrrum formann Framsóknarflokksins er skil ég ekki. En þegar ofangreind orð bætast við yfirlýsingu um mikla fjölgun kvenna í friðagæslunni þá eru áhugaverðir hlutir séu að koma fram. Það kæmi mér ekki á óvart að Framsókn muni byggja veigamikinn hluta kosningabaráttu sinnar á því að hún sýnir "jafnrétti" í verki. Svo lengi sem VG og Frjálslyndir beygi ekki útaf stefnu sinni þá verður Framsóknarflokkurinn eina framboðið sem hefur konur sem oddvita lista í helming kjördæma. Nú þegar er helmingur ráðherra framsóknar konur og það er erfitt að koma auga á þrjár konur í Sjálfstæðisflokkki eða Samfylkingu sem eiga skýrt tilkall til ráðherrasætis. Samfylkingin sem þykist vera mikill jafnréttisflokkur er með karla í öndvegi í öllum kjördæmum nema einu!
Þegar Valgerður er talar svona um karlapukur og afléttir leynd er hún líka að gefa tón um hvernig framsókn vilji skapa sér sérstöðu. Hinsvegar er ég ekki viss um að hún geti verið trúverðug þegar hún tekur sér orð eins og pukur í munn. Það eru alltof margir sem setja til dæmis spurningamerki við kaupin á Búnaðarbankanum þegar Valgerður var iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Í athugasemdum hér á bloginu og í tölvupóstum hafa margir haft á orði að pukrið þá hafi verið sýnu verra en í utanríkisráðuneytinu þegar fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins réð þar ríkjum. Þetta skot Valgerðar á fyrrum formann sinn sýnir enn og aftur að sjaldan launar kálfurinn ofeldið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 18. janúar 2007
Munu þeir muna?
Tóku einhverjir eftir orðum Ingibjargar Sólrúnar í Kastljósi sl. mánudag þar sem hún og Árni Mathiesen mættust? Efnahagsmál voru til umfjöllunar og á einum tímapunkti lét hún þessi orð falla:
"Ég tel það alveg fráleitt að við förum í þessar álversframkvæmdir á næstu árum"
Munu þessi 58% Norðlendinga sem styðja álver í Húsavík muna orð Ingibjargar næsta vor? Mun einhver þeirra 75% Húsvíkinga sem vilja álver veita henni atkvæði sitt? Hvernig munu Suðurnesjamenn kjósa? 66% íbúa Reykjanesbæjar styðja álver í Helguvík. Þeim er þá núna ljóst að atkvæði til Samfylkingarinnar er atkvæði gegn álveri.
Húsvíkingar og Suðurnesjamenn eru heppnir, kostir þeirra hafa verið einfaldaðir, með álveri eða á móti því. Stjórnarandstaðan vill ekki byggja, stjórnarflokkarnir vilja byggja. Ekki flókið.
Eða halda menn að ISG muni draga í land á framboðsfundum suður með sjó og fyrir norðan?
Fimmtudagur, 18. janúar 2007
Fjöldafundur um stjórnarskrárbreytingu!
Þjóðarhreyfingin hýtur að láta til sín taka í umræðum um fyrirhugaða stjórnarskrárbreytingu. Ég bíð spenntur eftir því að þeir láti báðir heyra í sér.
Síðast þegar rætt var um þjóðaratkvæðagreiðslu boðuðu þeir kumpánar Hans og Óli eða Þjóðarhreyfingin eins og parið kýs að láta kalla sig til fjöldafundar. Á fundinum töldu þeir 3000 manns en eins og sjá má af myndinni að neðan þá sá Ágúst "800" Ágústsson um talninguna.
Frá "fjöldafundi" Þjóðarhreyfingarinnar til að mótmæla því að svipta á þjóðina stjórnarskrárvörðum kosningarrétti sem haldinn var í júlí 2004. Myndin: Andriki.is
![]() |
Tillaga um að kosið verði um stjórnarskrárbreytingar í þjóðaratkvæðagreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 17. janúar 2007
Fulham sigrar Birmingham en var undir á móti Leicester í hálfleik.
Það er magnað hjá Fulham að sigra Birmingham 4-3 í kvöld eftir að hafa lent undir 3-1 á móti Leicester í upphafi síðari hálfleiks. Voru þeir 11 á móti 22?
Wayne Routledge var hetja Fulham þegar liðið sigraði 1. deildarlið Birmingham, 4:3, í endurteknum leik liðanna í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld. Routledge skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en það blés ekki byrlega fyrir liðið í upphafi síðari hálfleiks. Leicester komst í 3:1 en Ítalinn Vincenzo Montella kom inná í hálfleik og honum tókst að jafna metin með tveimur mörkum á skömmum tíma.
Þegar Sævarr var með vefinn frettir.com var hann naskur að finna svona nett klúður hjá vefútgáfum blaðanna. Mig minnir að einhverntíma hafi íþróttadeildin verið svo slæm með svona blóm að það var hætt að vera sport að stríða þeim.
![]() |
Frábær endasprettur hjá Fulham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 16. janúar 2007
Aumlegastu tilraun til að komast undan verki
á Guðmundur Ásgeirsson, stjórnarformaður Nesskipa og eigandi Wilson Muuga þar sem hann segir í Fréttablaðinu í dag að:
Skipið geti orðið góð viðvörun fyrir sjófarendur, minnismerki og lyftistöng fyrir ferðamennsku fengi það að standa.
Yeah right!
Og Nesskip ætla að halda skipinu við og koma í veg fyrir að það verði ryðgandi járnarusl?
Yeah right!
Við skulum treysta gaur sem skráir skipið sitt í Kýpur og ræður Rússneska áhöfn og kemur fram í fyrstu eingöngu sem umboðsmaður skipsins í stað þess að viðurkenna eignarhald.
Hvernig voru aftur fyrstu fréttir að áhöfnin neitaði að tala við björgunarmenn fyrr en þeir höfðu talað við eigendur eða tryggingafélagið? Það er gríðarleg skítalykt af þessu.
Þetta yrði fallegt eftir ca. 10 ár.
---------------
Ég átti þetta líklega skilið fyrir síðustu færslu. Svar Tadds er stúpid en fyndið. Aðrir sem tóku Google Analytics færsluna einhvern veginn til sín voru minna fyndnir enda á ókunnum slóðum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.1.2007 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)