Mánudagur, 10. mars 2008
Verðgetraun
Í tilefni þess að búnaðarþingi 2008 er nýlokið langar mig til að leggja eftifarandi getraun:
Ég fór út í matvörubúð í gær og keypti nokkra hluti, hvað kostaði karfan?
- Baguette brauð
- Kippa af Heineken flöskubjór
- Lítri af hreinu jógúrti
- Eggjabakki
- 130g af Kólumbía kaffibaunum
- 100g af hvítlauk
- 70g af engiferrót
- 20g fersk mynta (lítð box)
- 200g Rauð paprika
- 2 stórir Mangóávextir
Við skulum miða gengi við 68 kr. svo skulum við ræða matvælaverð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:13 | Facebook
Athugasemdir
>Langar svona a slá á hvað þetta gæri hafa kostað, reyndar bý sjálf í Danmörku svo ég þekki orðið lítið verð á íslandi. Ég giska á að þetta hafi verið um 8 dollarar.
Kveðja frá Danaveldi
Sigríður Ragnarsdóttir, 10.3.2008 kl. 06:14
Þetta ku hafa kostað 1.023.-
Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 07:24
Ég myndi giska á ca. 18 dollara sem gerir 1224 kr. Það sem líklega hleypir verðinu upp er að þú ert bjór í körfunni hjá þér sem er innfluttur.
Bjössi. (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 07:55
Ég veit ekki hver þú býrð en hér á Íslandi myndi þetta kosta ca. 3.000-3.500 kr held ég.
Vilborg (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 12:00
Íslenskt verðlag væri 40-50 USD. Held að þessi bjórkippa hafi vart kostað undir 12 dollurum en restina færðu fyrir lítið - eigum við að segja 20 USD?
Sigþór (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 15:52
Mér finnst allir frekar bjartsýnir fyrir mína hönd.
Heildarverð fyrir herlegheitin voru 24$ eða 1632 kr miðað við 68 kr pr. dollar.
Þar af kostaði kippan af innfluttum Heineken bjór 7$(kippa af innlendu gutli er undir 5$ og í útsölumarkaði er kassinn af Heineken 24$). Þannig að án bjórsins væri þetta 1156 kr.
Það má vera að ég hafi eitthvað ruglast í umbreytingunni úr únsum og pundum annarsvegar yfir í kíló og lítra.
Ég bý á einu af dýrustu svæðum Bandaríkjanna, laun og fasteignaverð hér eru mikið hærri en 95% bandaríkjamanna búa við. Það hefur auðvitað áhrif á matvælaverð. Matvöruverslanir starfa í þannig samkeppnisumhverfi þær leyfa sér ekki meira en 1-2% hagnað á vörum.
Friðjón R. Friðjónsson, 10.3.2008 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.