Sjóræningi, ballerína, Grísalingur - hvað ætlar þú að verða vina...

SjóræningjarÞað er heilmikil vinna að vera tæplega 4 ára Ameríkani þótt bara að hálfu sé.

Undanfarna daga hefur Karitas þurft að ganga í ýmis hlutverk. Á mánudag var hún sjóræningi, svo var balletttími á þriðjudag og í dag var náttfatadagur sem allir tóku mjög alvarlega eins og myndir bera með sér.

Aðalhöfuðverkur vikunnar er þó sá að á föstudag eiga börnin í leikskólanum að koma í búningi þess starfs sem þriggja og fjögra ára börnin ætla sér að eyða ævinni við að starfa. Mér finnst hugmyndin geggjuð. Við höfum aldrei rætt um það við Karitas hvað hana langar til að verða þegar hún verður stór, pabbi hennar er ekki einu sinni búinn að ákveða það og það styttist í fertugsafmælið hans!Ballerína

Reyndar sagði Karitas að hún vildi fara sem trúður, þegar ég var að reyna að útskýra konseptið fyrir henni. Hún á einmitt trúðabúning.  Mig langar til að senda hana í litlum jakkafötum og láta hann segja að hún sé lögfræðingur og ætli að verða slíkur til að hjálpa pabba með lögfræðikostnaðinn! Athugum hvort ekki hringi einhverjum bjöllum við það. Eða kannski senda hana í forljótri Hawaii-skyrtu og láta hana segja að hún ætli að verða bloggnörd og besserwisser.

Einhverjar uppástungur?Súperman og Gríslalingur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FreedomFries

Sæll!

Þetta er með skemmtilegri bloggfærslum sem ég hef lesið lengi!

Krakkarnir mínir eru bæði hálfir kanar, þau hafa eytt allri eða hálfri ævinni í Bandaríkjunum. Ég held að við séum líka báðir sammála um að það sé ótrúlega skemmtilegt að ala upp börn í Bandaríkjunum - Halloween er samt skemmtilegasta barnahátíð ársins.

Minnesota er líka intensely family centered fylki, þó það sé solidly liberal. ;)

FreedomFries, 12.7.2007 kl. 05:33

2 Smámynd: Kjartan Vídó

Við skulum vona að hún vilji ekki vera kommi einn góðan veður daginn

Kjartan Vídó, 12.7.2007 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband