Hvar er vinstri sveiflan???

NFS er búinn að hamast á því í allan dag að úrslit kosninganna sýna vinstri sveiflu. Ég er ekki hlutlaus en ég sé hana bara ekki. Ef maður skoðar niðurstöðurnar úr 10 stærstu sveitarfélögunum þá kemur í ljós mikil sveifla frá framsókn og til vinstri grænna.  Annað ekki. Samfylking bætir við sig einum manni, Sjallar tveim, frjálslyndir einum.

 

 

 BDFSV
Reykjavíkurborg-11000
Kópavogsbær-20011
Hafnarfjarðarkaupstaður0-2011
Akureyrarkaupstaður-20021
Reykjanesbær010-10
Garðabær00000
Mosfellsbær-1-1011
Sveitarfélagið Árborg-120-21
Akraneskaupstaður-101-11
Seltjarnarneskaupstaður01000
 -82116

Tölurnar stemma ekki fullkomlega þar sem í töfluna vantar manninn sem L-listinn tapaði á Akureyri og ég treysti mér ekki til að áætla úr hvaða flokki maðurinn sem Neslistinn tapaði er.

Hverjar eru skýringarnar? Framsókn er í tómu rugli á landsvísu og vinstri grænir sem voru ekki tilbúnir í leikinn fyrir 4 árum mættu núna og uppskáru.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FreedomFries

Það þarf að vera sveifla í eina átt eða aðra. Til hvers annars að vera með kosningar eða stjórnmálaskýrendur í vinnu? Auðvitað er sveiflan sú að fólk hefur loksins áttað sig á að framsóknarflokkurinn stendur fyrir akkúrat ekki neitt, en hvað á að kalla það? 'sveifla frá hagsmunagæslubandalögum til legit stjórnmálaflokka'? En það er það sem hefur gerst...

M - FreedomFries

FreedomFries, 30.5.2006 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband