Miðvikudagur, 14. febrúar 2007
Vinstri grænn á villigötum
Baldvin rauði bæjarfulltrúi vinstrigrænna á Akureyri á grein í Fréttablaðinu í dag. Við lestur hennar rifjast upp af hverju vinstri grænir eru ekki stjórntækir. Greinin er svo uppfull af samsæriskenningum, dylgjum og dellu að leitun er að viðlíka, það er helst að greinar Ástþórs Magnússonar líkist þessum vaðli.
Baldvin er máske mætasti maður, þekki hann ekki neitt en þruglið sem rekið er inn um lúguna hjá mér í boði Baugs er ótrúlegt.
Þrjár setningar eru kjarninn í greininni.
Almenningur á Íslandi er látinn borga hundruð milljóna í kostnað af sýndarréttarhöldunum, sem fram fara í skjóli æðstu ráðamanna sjálfstæðisflokksins, og hvað með skattana sem Baugur hefði þurft að greiða af hagnaði þeim sem hefði hlotist af viðskiptum þeim sem átti að gera sama dag og ráðist var inn í það fyrirtæki, hefði Baugur keypt Arcadia og selt með 300 milljóna hagnaði, eins og mr. Green gerði?
Já, þetta er ein setning, það engu líkara en þeim rauða sé mikið niðri fyrir. Framhaldið kórónar þó málið.
Þá skatta, kannski nærri 40 milljarðar þá, vantar í ríkiskassann og maðurinn sem er ábyrgur fyrir þeim gjörningi hefur ráðið sjálfan sig í Seðlabankann, og er þar með sína samvisku, ætli margir af starfsmönnum Baugs, þori að tala óhikað í síma?
Ef ég skil þetta rétt þá telur bæjarfulltrúinn að 300 milljóna hagnaður skili 40 milljörðum í skatta og Davíð Oddsson skuldi þá? Hann nefnir ekki hvaða mynt hann er að nota í útreikningana en ég held að hann sé að nota peninga úr Íslenska efnahagsspilinu. Hvað símtöl starfsmanna Baugs koma þessum skattaútreikningum við, skil ég ekki en næsta setning á kannski að skýra það.
Njósnadeild Sjálfstæðisflokksins gæti verið á næstu grösum.
Hvaða njósnadeild er það? Er það sú sem Guðni Th. Jóhannesson frábiður sér að hafa búið til og vísar á Stöð 2 um fæðingu þess fyrirbæris? Er Baldvin ekki bara að gera það sem gömlu herrarnir hans í Kreml tíðkuðu, að ljúga nógu oft og lengi og þá verður lygin hluti af sögunni?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.2.2007 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 13. febrúar 2007
Áfall fyrir ritstjórn Moggans
Fyrst tapaði Halla formannslag KSÍ, svo eru vinstri sinnaðir kanar að missa sig yfir "Barry" Obama og nú lítur út fyrir að Segolene Royal verði ekki forseti Frakklands!
Ungar konur á ritstjórn Moggans sem fyrir nokkrum vikum fylgdust spenntar með kosningabaráttu bæði í Bandaríkjunum og Frakklandi hljóta vera á barmi taugaáfalls. Eitthvað þarf að taka til bragðs.
Það er þó engin ástæða til að örvænta þær geta þó alltaf lagst á sveif með ungu konunni sem er nýhætt í Frjálslynda flokknum og reynt að tryggja henni þingsæti með einhverjum hætti.
![]() |
Sarkozy verður næsti forseti Frakklands samkvæmt skoðanakönnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 12. febrúar 2007
Gott silfur
Bjarni harðarson sannaði í dag í silfrinu að það er til skynsamt fólk í Framsóknarflokknum. Það var gaman að fylgjast með honumkljást við Egil og 3 101 sósíalista sem, eins og Bjarni benti á um daginn, líta á landsbyggðina á Íslandi sem einn stóran þjóðgarð.
Best fannst mér staðhæfing Guðrúnar Pétursdóttur um að svo kyrrðina á hálendinu sem væri svo mikil að heyra mætti í bíl hundruði kílómetra í burtu! Svo menn átti sig á dellunni í henni þá ef maður er staddur á Kjalvegi mitt á milli Hofsjökuls og Langjökuls þá eru 114 km í beinni loftlínu til Sauðárkróks! Þannig að þegar Guðrún er á fjöllum þá heyrir hún starfsmenn íbúðalánasjóðs leggja af stað til vinnu. Kannski ætti að skíra hana Heimdall svona fyrst hún heyrir grasið gróa. Þetta sýnir í hnotskurn delluna sem veður uppi í umræðum um umhverfismál.
Bragi bóksali var líka stórskemmtilegur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 11. febrúar 2007
Minning
Hlynur var ekki náinn vinur minn, hann var í þessum óræða hóp fólks sem eru góðir vinir vina, góðir kunningjar, félagar. Hlynur var einn besti vinur eins besta vinar míns. Okkar samgangur var því nokkur og ég get sagt að ég þekkti hann vel.
Sl. fimmtudagskvöld vorum við Liz í mat hjá Steini og Völu þegar síminn hringir. Ég er feginn að við vorum þarna með þeim á þessari stundu. Þarna þar sem við vorum að segja vonda brandara eina stundina og svo sekúndum síðar var allt breytt.
Ég hafði ofboðslega gaman af Hlyn, í partýum laumaðist ég oft með honum út að reykja og þar réttilega skammaði hann mig fyrir hve forpokaður forsjárhyggjuflokkur Sjallinn er, varnir mínar voru eingöngu þær að benda á eitthvað annað, þannig skyldibölið er bætt . Hann var kaldhæðinn efahyggjumaður og með mjög ríka kímnigáfu. Þess vegna líkaði mér svo vel við hann,hann var svona "No-bullshit" náungi. Við deildum áhuga á gögnum og trúnni á gagnavinnslu, þar náðum við saman, gátum spekúlerað lengi. Ég vann svo í fyrra með honum að smá verkefni þar sem ég kynntist greind hans og hæfileikum enn betur. Nú erfallvalteiki lífsins manni enn ljósari en áður, við Hlynur ræddum um áframhald verkefnisins en þóttumst hafa nægan tíma.
Það elskuðu hann margir, það syrgja hann enn fleiri. Ég er glaður að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að hafa kynnst honum.
Laugardagur, 10. febrúar 2007
Treblinka - Lubyanka - Hverjum er ekki sama?
Eitthvað klikkar mogginn herfilega í myndatexta með fréttinni
Treblinka, höfuðstöðvar fyrrum leyniþjónustu Sovétríkjanna, KGB. Íslendingar njósnuðu um sovésku njósnarana hér á landi. mbl.is
Treblinka voru útrýmingabúðir í Nasista í Póllandi á stríðsárunum meira hér.
hið rétta er að Lubyanka voru höfuðstöðvar KGB og Cheka og nú er öryggislögregla Rússlands með höfuðstöðvar sínar þar. sem sýnir kannski að minna hefur breyst en margur heldur.
Það þarf kannski að senda suma moggastarfsmenn á google námskeið.
![]() |
Starfsmönnum KGB veitt eftirför upp á fjöll á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |