Þriðjudagur, 22. maí 2007
Alfreð og Gulli
Þeir þurfa a.mk. að vinna mjög náið saman núna.
Mikið er pólitíkin skemmtileg
Þriðjudagur, 22. maí 2007
Snilld!
Fékk græna kortið sent í pósti í dag og heilbrigðistryggingu í gær.
Hjúkk.
![]() |
Guðlaugur Þór verður heilbrigðisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 22. maí 2007
Til hamingju með daginn!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. maí 2007
Staðreyndaklám
Sigurður G. Tómasson, útvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins er einn af þessum staðhæfingaklámhundum. Vinnubrögð hans eru á þann veg að hann slengir fram einhverju sem honum finnst benda til einhverrar hneigðar eða skoðunar og alhæfir svo útfrá því. í Silfri Egils í dag slengdi hann fram fullyrðingunni að í Reykjarvíkurbréfi Morgunblaðsins, þar sem fjallað er um yfirstandandi stjórnarmyndun, kæmu orðin hætta og áhætta 10-12 sinnum og bentu til einhverrar vænisýki höfundar og þ.a.l. væri mogginn á einhverju móðursýkisstigi og ekkert mark á honum takandi.
Það er nú ekki flókið að staðreyna fullyrðingu Sigurðar, Reykjarvíkurbréfið er hér. Þá sér maður að af 2291 orði kemur orðið hætta fyrir tvisvar og áhætta einu sinni. Vænisýkin er semsagt öll í huga Sigurðar. Nú veit ég ekki hvað Sigurður G. Tómasson innbyrti áður en hann las greinina, nýlega eða á hippaárunum, en það hjálpar honum a.m.k. ekki að takast á við raunveruleikann. Getur einhver sem þekkir til hans staðið fyrir svona inngripi og reynt að koma honum til okkar, inn í raunveruleikann til okkar hinna. Nei, það er líklega er það of seint.
Laugardagur, 19. maí 2007
Sterk Þorgerður
Það er eftirtektarvert hve sterk Þorgerður er að koma út úr kosningunum og stjórnarmyndunum. Sérstaklega ef rétt er eins og Mannlíf og fleiri hafa slúðrað að hún hafi átt fyrstu viðræðurnar við formann Samfylkingarinnar og komið þeim á það stig að hægt væri að halda áfram. Stöðumunur hennar og kollega hennar í Samfylkingunni er sérstaklega áberandi þessa dagana.
| 2003 | 2007 | breyting |
S kjörd. | 29,19% | 36,0% | 6,81% |
NA kjörd. | 23,53% | 28,0% | 4,47% |
SV kjörd. | 38,42% | 42,6% | 4,18% |
Reykjav. S | 38,03% | 39,2% | 1,17% |
Reykjav. N | 35,50% | 36,4% | 0,90% |
NV kjörd. | 29,57% | 29,1% | -0,47% |
Atkvæði alls | 33,68% | 36,60% | 2,92% |
kosningaár | Landið | Reykjavík |
1959 | 39,7% | 46,7% |
1963 | 41,4% | 50,7% |
1967 | 37,5% | 42,9% |
1971 | 36,2% | 42,6% |
1974 | 42,7% | 50,1% |
1978 | 32,7% | 39,5% |
1979 | 35,4% | 43,8% |
1983 | 38,7% | 43,0% |
1987 | 27,2% | 29,0% |
1991 | 38,6% | 46,3% |
1995 | 37,1% | 42,3% |
1999 | 40,7% | 45,7% |
2003 | 33,7% | 37% |
. | ||
Meðaltal | 37,0% | 43,0% |
án 1987 | 37,9% | 44,2% |
Hvað höfuðborgina varðar þá er það sérkapítuli fyrir sig. Árangurinn í síðustu tveim kosningum hefur verið sá versti frá því fyrir 1959, ef kosningarnar 1987 eru frátaldar en allir þekkja hve óvenjuleg staða Sjálfstæðisflokksins var í þeim kosningum. sérstakt áhyggjuefni hlýtur að vera árangurinn í Reykjavík norður. Fylgisaukningin nær ekki einu prósenti. Í raun tapaði flokkurinn atkvæðum! Árið 2003 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 12.833 atkvæði en 12.760 s.l. laugardag. Hin magra fylgisaukning ræðst af versnandi þátttöku.
Ég veit ekki hvort hægt sé að kenna Guðlaugi Þór og Sigurði Kára einum um þessi ósköp en þeir njóta þess vafasama heiðurs að vera þeir einu sem prýtt hafa lista flokksins í báðum kosningum, kannski þurfum við næst að setja alvöru atkvæðasmala á listann?
Hvað um það Þorgerður, Árni M. og Kristján mega vel við una og eiga að njóta.
PS.
Það er skrítin praktík hjá Blaðinu að láta íþróttafréttamann skrifa mola um pólitík en Albert Örn Eyþórsson mætti tileinka sér þau vinnubrögð að lesa sér til um mál áður en hann opinberar ástand upplýsingar sinnar. Í mola dagsins í dag dregur hann í efa að árangur hafi náðst í málefnum Landhelgisgæslunnar.
...en að ótrúlega góður árangur hafi náðst hvað Landhelgisgæsluna varðar er undarleg niðurstaða í ljósi þess að tækjafloti hennar hefur verið sá sami um fimmtán ára skeið.
Albert var líklega upptekinn við að skrifa um að Teitur Þórðarson treystir á breiðan hóp í sumar og missti af því þegar tilkynnt var um samning á smíði nýrrar eftirlitsflugvélar og svo hefur hann líklega verið að fylgjast með blaki þegar nýju leiguþyrlurnar komu, þegar samið var um smíði nýs varðskips, þegar samið var um samstarf við Dani og tilkynnt var um fyrirætlað samstarf við Strandgæsluna bandarísku. Í raun má er það líklega bara sjálfvirki yddarinn á skrifstofunni sem heldur sér í þeirri endurnýjun sem er byrjuð og mun standa yfir á næstu árum. En þar fyrir utan er ekkert að gerast og líklega þörf á að fá mann sem tekur til hendinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2007 kl. 06:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)