Föstudagur, 25. maí 2007
Íslensk stundvísi
Við grínumst stundum með það við hjónin hvort mæting einhverstaðar sé eftir íslenskri stundvísi eða erlendri. ekki það að við séum stundvís, eiginlega ekki, sérstaklega ekki eftir að fjölgaði í fjölskyldunni.
Ég fékk þessar myndir sendar og söguna á bak við þær um daginn sem áþreifanlega sönnun fyrir íslenskri stundvísi.
Þann 11. maí sl. héldu sænsku konungshjónin veislu í ráðhúsinu í Malmö, tilefnið var lok opinberrar heimsóknar þeirra til Danmerkur. Þarna var allskonar fyrirfólk mætt frá báðum löndum. Eitthvað var ábótavant í skipulagi þannig að sænsku konungshjónin komu ekki til veislunnar fyrr en ríflega heilli klukkustund eftir að boðað var til hennar til að tryggja að allir gestirnir væru komnir. Þegar þau koma til veislunnar er dyrunum lokað. Einhverjum mínútum eftir að konungshjónin komu rennir bifreið upp að dyrunum, kyrfilega merkt með íslensku fánum og þar voru mætt sendiherra Íslands í Danmörku, frú hans og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Þeim var auðvitað ekki hleypt beint inn og þurftu að húka úti um stund þar til þau fengu að laumast inn í partýið, löngu eftir að boðið var til þess.
Íslensk stundvísi er ekki til fyrirmyndar.b
Uppfært-
Mér var réttilega bent á að Svavar er ekki lengur sendiherra í Svíþjóð heldur er hann sendiherra í Danmörku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Af hverju Bandaríkin eru stórveldi en Ísland ekki...
Skýrasta dæmið er að ég fæ jafnmörg puslubrauð og pulsur út í búð.
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Góðir punktar hjá "hægri" stjórninni
- Stefnt skal að frekari lækkun skatta á einstaklinga á kjörtímabilinu
- Á kjörtímabilinu verður leitað leiða til að lækka frekar skatta á fyrirtæki
- Stimpilgjald í fasteignaviðskiptum verði afnumið á kjörtímabilinu þegar aðstæður á fasteignamarkaði leyfa.
- Verkaskipting ráðuneyta verði endurskipulögð
- Unnið verði að endurskoðun landbúnaðarkerfisins með það fyrir augum að auka frelsi, bæta stöðu bænda og lækka verð til neytenda
- Ráðdeild og varfærni í fjármálum hins opinbera er höfuðnauðsyn
- Trúfélögum verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra.
- Stefnt skal að auknu faglegu og rekstrarlegu sjálfstæði skóla og minni miðstýringu.
- Skapað verði svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Á þing fyrir CV-ið?
Fyndið, ég hélt að stjórnmálaþátttaka snérist um eitthvað annað en ferilskránna.
Það er greinilega aðalmálið að fá fleiri konur á þing.
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Það veit á gott
Ríkisrekstur á að heyra sögunni til á samkeppnismarkaði
Það veður hinsvegar áhugavert að fá að vita hvað breytingarnar á viðskiptaráðuneytinu muni kosta til að koma fyrir skrifstofum fyrir hann og aðstoðarmanninn.