Fimmtudagur, 31. maí 2007
Ég, ég, ég, ég
Ellert Schram hinn nýi þingmaður Samfylkingarinnar er fyndið fyrirbæri. Hann er eini maðurinn sem ég veit um sem hefur birt grein undir fjögurra orða fyrirsögn hvers helmingur var orðið ÉG.
Þessi áhugi Ellerts á sjálfum sér er ekkert nýr af nálinni, umfjöllunarefni hans hefur löngum verið hann sjálfur. Um Hvítasunnuhelgina birtist í Fréttablaðinu grein Ellerts um Ellert, eins og aðrar greinar höfundar er hún upphafning sjálfsins í tærri mynd. Viðskiptablaðið í gær benti á að ríflega 6% greinarinnar um Hvítasunnuhelgina eru orðið ég og eiginfornöfn. Hann bætti þó aðeins um betur í sjálfumgleðinni og líkti sér við Jesúm Krist!
Það kemur svo sem ekkert á óvart að til sé Samfylkingarfólk sem vill taka formanninn í guðatölu. Þær raddir höfðu að vísu hljóðnað undanfarinn misseri, en grein Ellerts er kannski vísir að upprisu þess kórs.
Það kemur heldur ekki á óvart að manninn hrjái Messíasarkomplexar, þeir sem kannast við sögu Ellerts innan Sjálfstæðisflokksins þekkja þá hlið. Það vantar þó alveg í grein Ellerts, eftir að hann skilgreindi muninn á sér og frelsaranum, hvað hann sér líkt með sér og Jesúm. Er þetta eini munurinn á þeim eða er fleira sem skilur þá að?
Við bíðum frekari skrifa, vonandi þurfum við ekki að bíða fram á jól.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Sigríður ekki vanhæf - því dæmir Sigrún
Steingrímur Ólafsson dundaði sér lengi við að finna villur sumarstarfsmanna mbl.is, ætli að hann verði jafnnaskur á að finna villurnar á vísi?
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Blaðið fyrst með fréttirnar
Það er líklegast að umsjónarmenn Heyrst hefur hafi verið að vafra um lögregluvefinn og séð þar nokkra daga gamla frétt um að Arnar, Sigurgeir Ó. Sigmundsson, lögreglufulltrúi og Sveinn Ingiberg Magnússon lögreglufulltrúi eru allir við nám eða störf erlendis
...eins og sagt er á lögguvefnum.
Blaðið setur þetta hinsvegar upp í einhvern búning að þetta sé einhver leynifrétt! Heyrst hefur... Eins og þetta sé eitthvað sem rætt er um manna á meðal.
Bah!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Fellur á fyrsta prófi
Hann var spurður í viðtali á Stöð 2 um innflutning á landbúnaðarafurðum og það vareins og Guðni væri kominn aftur í stólinn, bara minna fyndinn.
Einar, það er enginn að biðja þig um að "rústa" íslenskum landbúnaði, bara gefa okkur von um að eitthvað breytist frá samhengislausa ruglinu sem kom frá landbúnaðarráðuneytinu í tíð Guðna.
Það eru til tvennskonar ráðherrar, þeir sem Ráða og þeir sem slyttast í að verða málpípur embættismanna. Ekki verða síðari sortin, þú ert of góður maður til þess.

Hér má sjá ára frá Nýja-Sjálandi
Það er ógn og skelfing á Brúnastöðum en við vonum að menn haldi ró sinni í Bolungarvík.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 28. maí 2007
Vilta (norð)vestrið
En þegar Sturla Böðvarsson lét af embætti samgönguráðherra lét hann hafa eftir sér að hann vissi ekki hvað tæki við 2009 þegar hann léti af embætti forseta alþingis en það yrði eitthvað sem hæfði fyrsta þingmanni norðvesturkjördæmis. Þessi yfirlýsing hefur staðið í mér í nokkra daga.
Það er nefnilega auðvelt að skilja orð Sturlu þannig að hann geri sér vonir um að endurheimta ráðherrastól. Ég held hinsvegar að hann hafi verið að láta vita að það verði dýrt að koma fyrsta varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í norðvesturkjördæmi á þing.
Það verður áhugavert að sjá hvað það muni kosta og hver gefur eftir.
Hvar eruð veðbankar þegar mann langar að hætta fé til gamans?