Ţriđjudagur, 19. febrúar 2008
Framtíđin er frá Japan
Fjölskyldan fór inn til DC sl. sunnudag til ađ líta á Japanssýningu í Kennedy Center. sýningin var skemmtileg og ţar voru róbotar frá Honda og Toyota til sýnis. Vélmenni Honda, Asimo var magnađ ţar sem ţađ hljóp, labbađi upp og niđur tröppur og lék allskyns listir.
Ég varđ fyrir n.k. hugljómun ţar sem ég hélt á Karitas svo hún gćti séđ. Hún starđi í andagt á vélmenniđ, ég horfđi á hana. Hvernig verđur heimur hennar eftir 33 ár? Hún er ţegar orđin nokkuđ tölvulćs og horfir á vélmenni athafna sig 4 ára. Ţegar ég var 4 ára ţekktust einkatölvur ekki, Rúv var í svarthvítu og beinar útsendingar voru fćrri skynsamar ákvarđanir fyrrverandi borgarstjóra.
Eftir ţessi 33 ár ţegar ég verđ orđiđ löggilt gamalmenni og Karitas komin á minn aldur, munu vélmenni sćkja lyfin mín og passa ađ ég gleymi ekki ađ taka ţau? Mun ég ţurfa ađ forrita ţađ til ađ blanda fyrir mig almennilegan Martini? Mun einhver ábyrgur fjölskyldumeđlimur geta yfirskrifađ mínar skipanir til ađ bjarga lifrinni?
Miđađ viđ ţróun í tölvum og tćkjum síđustu ár, er ekkert ólíklegt ađ rafknúnir ađstođarmenn hjálpi fólki í náinni framtíđ. Magnađ.
Karitas eignas vin. Fleiri myndir hér.
Ţetta er svo hann Asimo
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Facebook
Athugasemdir
Eflaust munt ţú eiga einhvers konar vélmenni fyrir hjálparhellu áđur en mjög langt um líđur. En sumir eru á ţví ađ ţetta međ vélmennin gćti gengiđ mun lengra ...
(Ţađ er varla ađ ég hafi geđ í mér til ađ tengja á ţetta — viđ erum ósköp vön ađ sjá ţetta eitrađa háđ notađ á siggbrynjađa stjórnmálamenn, en á feimna akademíska nörda međ heilan sal hlćjandi ađ sér? Ţađ svíđur dálítiđ í gollurshúsiđ.)
Gunnlaugur Ţór Briem, 19.2.2008 kl. 21:28
Ţetta er fasinerandi, reyndar var Colbert mjög blíđur viđ hann og mér fannst Levy koma vel út úr viđtalinu, hefur örugglega hjálpađ sölunni á bókinni hans stórlega.
Friđjón R. Friđjónsson, 20.2.2008 kl. 01:12
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.