Laugardagur, 19. maí 2007
Sterk Þorgerður
Það er eftirtektarvert hve sterk Þorgerður er að koma út úr kosningunum og stjórnarmyndunum. Sérstaklega ef rétt er eins og Mannlíf og fleiri hafa slúðrað að hún hafi átt fyrstu viðræðurnar við formann Samfylkingarinnar og komið þeim á það stig að hægt væri að halda áfram. Stöðumunur hennar og kollega hennar í Samfylkingunni er sérstaklega áberandi þessa dagana.
| 2003 | 2007 | breyting |
S kjörd. | 29,19% | 36,0% | 6,81% |
NA kjörd. | 23,53% | 28,0% | 4,47% |
SV kjörd. | 38,42% | 42,6% | 4,18% |
Reykjav. S | 38,03% | 39,2% | 1,17% |
Reykjav. N | 35,50% | 36,4% | 0,90% |
NV kjörd. | 29,57% | 29,1% | -0,47% |
Atkvæði alls | 33,68% | 36,60% | 2,92% |
kosningaár | Landið | Reykjavík |
1959 | 39,7% | 46,7% |
1963 | 41,4% | 50,7% |
1967 | 37,5% | 42,9% |
1971 | 36,2% | 42,6% |
1974 | 42,7% | 50,1% |
1978 | 32,7% | 39,5% |
1979 | 35,4% | 43,8% |
1983 | 38,7% | 43,0% |
1987 | 27,2% | 29,0% |
1991 | 38,6% | 46,3% |
1995 | 37,1% | 42,3% |
1999 | 40,7% | 45,7% |
2003 | 33,7% | 37% |
. | ||
Meðaltal | 37,0% | 43,0% |
án 1987 | 37,9% | 44,2% |
Hvað höfuðborgina varðar þá er það sérkapítuli fyrir sig. Árangurinn í síðustu tveim kosningum hefur verið sá versti frá því fyrir 1959, ef kosningarnar 1987 eru frátaldar en allir þekkja hve óvenjuleg staða Sjálfstæðisflokksins var í þeim kosningum. sérstakt áhyggjuefni hlýtur að vera árangurinn í Reykjavík norður. Fylgisaukningin nær ekki einu prósenti. Í raun tapaði flokkurinn atkvæðum! Árið 2003 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 12.833 atkvæði en 12.760 s.l. laugardag. Hin magra fylgisaukning ræðst af versnandi þátttöku.
Ég veit ekki hvort hægt sé að kenna Guðlaugi Þór og Sigurði Kára einum um þessi ósköp en þeir njóta þess vafasama heiðurs að vera þeir einu sem prýtt hafa lista flokksins í báðum kosningum, kannski þurfum við næst að setja alvöru atkvæðasmala á listann?
Hvað um það Þorgerður, Árni M. og Kristján mega vel við una og eiga að njóta.
PS.
Það er skrítin praktík hjá Blaðinu að láta íþróttafréttamann skrifa mola um pólitík en Albert Örn Eyþórsson mætti tileinka sér þau vinnubrögð að lesa sér til um mál áður en hann opinberar ástand upplýsingar sinnar. Í mola dagsins í dag dregur hann í efa að árangur hafi náðst í málefnum Landhelgisgæslunnar.
...en að ótrúlega góður árangur hafi náðst hvað Landhelgisgæsluna varðar er undarleg niðurstaða í ljósi þess að tækjafloti hennar hefur verið sá sami um fimmtán ára skeið.
Albert var líklega upptekinn við að skrifa um að Teitur Þórðarson treystir á breiðan hóp í sumar og missti af því þegar tilkynnt var um samning á smíði nýrrar eftirlitsflugvélar og svo hefur hann líklega verið að fylgjast með blaki þegar nýju leiguþyrlurnar komu, þegar samið var um smíði nýs varðskips, þegar samið var um samstarf við Dani og tilkynnt var um fyrirætlað samstarf við Strandgæsluna bandarísku. Í raun má er það líklega bara sjálfvirki yddarinn á skrifstofunni sem heldur sér í þeirri endurnýjun sem er byrjuð og mun standa yfir á næstu árum. En þar fyrir utan er ekkert að gerast og líklega þörf á að fá mann sem tekur til hendinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2007 kl. 06:17 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Friðjón
Þar sem þú talar um að helmingurinn af 15 sé burkni langaði mig aðeins að bögga þig. % er hlutfall þótt margir vilji tala um prósentu stig og mínusa bara samanburðartölur í stað þess að deila. Þannig að breytingin í töflunni þinni ætti að vera fyrir Suðurland 23% o.s.frv
Sjálfstæðisflokkurinn hefur 29.19x 1.23= 36% 23 er tilkomumeira en 6.81
Takk fyrir gott blogg
Víðir (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 20:53
Fín athugasemd Víðir, en haus töflunnar segir breyting ekki aukning. Þannig að tæknilega er þetta einnig rétt. Mér finnst ekki rétt að fullyrða að breytingin hafi verið 23% í S-kjördæmi.
Mín nálgun er eftirfarandi:
Heildaratkvæði í S-kjördæmi árið 2003 voru X. Við fengum 29,19% af þessu X-i. Núna fjórum árum síðar fengum við 36% af Y sem er heildafjöldi greidddra atkvæða í S-kjördæmi árið 2007. Hlutfallstala okkar hærri svo nemur 6,81 stigum. Ég hefði auðvitað getað sett þetta upp á hinn veginn en það er áróðurskennt og í stíl við markaðssetningu 365.
Þú skilur.
Friðjón R. Friðjónsson, 19.5.2007 kl. 21:14
Ég tek undir það að Þorgerður kemur virkilega sterk út úr þessum kosningum. Hún er greinilega að tryggja sér formannsstólinn í flokknum eftir setu Geirs í honum....
Sigfús Þ. Sigmundsson, 20.5.2007 kl. 01:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.