Fimmtudagur, 3. maí 2007
Delerandi frambjóðandi
Margrét Sverrisdóttir kemst að skrítinni niðurstöðu í Blaðspistlinum fræga, sem hún er nú búinn að setja á netið. Hún virðist sannfærð um að fjölmiðlarnir og löggjafinn séu í einhverskonar samsæri gegn Íslandshreyfingunni.
Hún segir:
Svo var líka sett í lög að ný framboð yrðu að ná 5% fylgi til að ná manni á þing.
Það er synd að manneskja sem stefnir að því að komast á þing þekki ekki lögin um kosningar til alþingis betur, já og fleiri lög. Hvernig dettur henni í hug að það gildi einhverjar sér reglur fyrir ný" framboð. Allir flokkar verða að ná 5% fylgi. Um tíma stefndi að elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins þurrkaðist út af þingi því hann var ekki að ná 5% í könnunum.
Aðallega er hún þó rasandi yfir fjölmiðlunum. Formáli að pistlinum á heimasíðu Margrétar segir að hún vilji ...ítreka að megininntak greinarinnar er að sjónvarpsþættir með yfirheyrslum pólitískra fulltrúa eru hlutdrægir og ekki líklegir til að efla áhuga fólks á þátttöku í pólitík."
Þættirnir eru aðallega leiðinlegir og því ekki líklegir til að efla áhuga fólks. Svo bætir ekki úr skák að vonarstjarna íslenskra stjórnmála, unga konan eins og ritstjórn moggans vill kalla hana, er hreinlega lélegur pólitíkus.
Í Blaðsgreininni segir hún:
Svo er það hlutur spyrlanna. Það vita allir, að þeir sem spyrja spurninganna í þessum þáttum eru innvígðir og innmúraðir í stjórnarflokkana.
Hvar er formaður Sus?
Margrét kvartar líka yfir uppstillingunni, stjórnarliðar öðrum megin og andstæðingar hinum megin. Þannig að það er ljós að hún er að kvarta yfir borgarafundum Rúv. Hverjir hafa verið spyrlar í þeim þáttum? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Brynja Þorgeirsdóttir Ingólfur Bjarni og Sigmar Guðmunds. Mig langar til að fá að vita hvert þeirra hefur verið formaður SUS? eða í hvaða flokk þetta fólk er innmúrað?
Margrét er orðin örvæntingarfull, það fjarar undan því litla sem þau höfðu og því grípur hún til þess ráðs að dylgja og delera.
-------
Lagfærði aðeins uppsetninguna, ég var eitthvað að huga að því halda börnum sofandi þegar ég póstaði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.5.2007 kl. 01:23 | Facebook
Athugasemdir
mér finnst töff að það séu svona mörg samsæri í gangi, en vá hvað þetta er samt skrítið hjá henni að draga þessar ályktanir - þeim gekk bara ágætlega í fyrstu skoðanakönnunum, betur en ég hefði búist við!! en auðvitað fjarar það út og það bjóst enginn við því að þau næðu inn svona í fyrstu tilraun.
halkatla, 3.5.2007 kl. 15:19
Burt séð frá allri pólitík ert þú yndislegur. Að tala um að "delera", og það með réttum formerkjum. Hann pabbi minn blessaður sem dó fyrir mörgum árum notaði þetta orð mikið en ég hef ekki víða heyrt það annars. Takk fyrir það. Og þassaðu þig nú að delera ekki mikið á almannafæri í Ameríkunni. Ég veit að þeir taka hart á því þarna. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 3.5.2007 kl. 21:46
Já hún er farinn að sýna sitt rétta andlit.
ragnar bergsson, 3.5.2007 kl. 23:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.