Þriðjudagur, 5. febrúar 2008
Enn klikkar Kastljós - Huckabee vinnur V-Virginíu
Björn Malmquist gerði stór mistök í Kastljósi í kvöld þegar hann var að tala um prófkjörið Kaliforníu hjá repúblíkönum. Kalifornía er ekki "winner takes all" fylki heldur er fyrirkomulagið þannig fylkinu er skipt í 53 kjördæmi og sá sem fær flest atkvæði í hverju kjördæmi fyrir sig fær fulltrúa þess kjördæmis.
Ingólfur Bjarni gerði líka skyssu í umfjöllun sinni um áhrif stuðningsyfirlýsinga Giuliani og Schwarzenegger, þeir eru ekki vinsælir hjá repúblíkönum í Kaliforníu. Repúblíkanaflokkurinn í þar er mjög íhaldssamur. Schwarzenegger hefði til dæmis aldrei verið valinn sem frambjóðandi flokksins í venjulegu prófkjöri. Hann komst til valda við mjög sérstakar aðstæður haustið 2003 eins og lesa má um á Wikiediu.
Við þetta má bæta að umfjöllun Íslands í dag með þeim Baldri Þórhallssyni og Karli Th. Birgissyni var að mestu til fyrirmyndar.
----
Fyrstu úrslit dagsins eru komin í hús, Mike Huckabee hefur náð 18 fulltrúum Vestur Virginíu á kjörfundi sem lauk fyrir stundu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 5. febrúar 2008
Slakt Kastljós
Umfjöllun Kastljóss í gærkvöldi um prófkjörin í dag var frekar slök. Steinn Jóhannsson er ákaflega vel að sér um bandaríska sögu þá hefur mér fundist hann hafa minni áhuga á nútímastjórnmálum og þ.a.l. ekki jafn vel að sér um þau.
Nokkur atriði sem voru röng:
- McCain tapar fyrir Hillary í könnunum.
Af 8 könnunum sem gerðar hafa verið um stuðning kjósenda við þau ef þau hljóta útnefningu flokka sinna þá sigrar McCain í 6 þeirra. Ef allar kannanir sem gerðar hafa verið á þessu ári eru teknar saman þá sigrar McCain 9 þeirra en Hillary 4. McCain sigrar allar þar sem líklegir kjósendur eru spurðir en það er jafnara á með þeim þegar skráðir kjósendur eru spurðir. Könnunin sem Steinn vísar til er könnun CNN þar sem 974 skráðir kjósendur voru spurðir og í eingu er getið um vikmörk. - Fulltrúafjöldiinn sem kosið er um í dag er 1688 hjá demókrötum og 1069 hjá repúblíkunum ekki 800.
- Einstaklingar mega ekki styrkja hvern frambjóðanda um meira en 4600$, 2300 í prófkjörið og 2300$ fyrir almennu kosning 5000$ er kannski rúnnun en röng tala engu að síður.
- Það er ekki bara einföldun að halda því fram að framboð McCain sé bara gamlar Bush lummur, það er beinlínis rangt. Fylgið sem hann nýtur er ekki síst vegna þess að litið er á hann sem anti-Bush af mörgum hópum. Margir af hörðustu fylgismönnum Bush hreinlega hata McCain. Ann Coulter lýsti þvi t.d. yfir fyrir stuttu að hún myndi frekar kjósa Hillary en McCain. Tom Delay fyrrv. leiðtogi Repúblikana í þinginu hefur sagt að framboð McCain muni eyðileggja flokkinn og útvarpsmaðurinn Rush Limbaugh hefur ekki legið á andstöðu sinni.
Í heildina mátti svo greina augljóslega óskhyggju hjá Brynju og Steini að frambjóðandi Demókrata sigri í haust. Það er svo sem ekkert skrítið að vilja eitthvað annað en Bush en McCain er alls ekki framhald á Bush stjórnninni.
Svo má lesa um Super Tuesday á eyjublogginu mínu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)