Fimmtudagur, 2. nóvember 2006
Vinna
Skrapp í tvo tíma í vinnu í dag. kíkti á ráđstefnu sérfrćđinga um siglingar, öryggismál og olíu- og gasflutninga, ţurfti ađ ganga frá fréttatilkynningu og taka myndir. Sat og hlustađi á tvo fyrirlestra, mjög áhugavert umfjöllunarefni. Einn galli var ţó á gjöf Njarđar, nýjasti fjölskyldumeđlimurinn tók smá nćtursveiflu í nótt. Ég held ađ ég hafi misst haus ţrisvar á klukkutíma á ráđstefnunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. nóvember 2006
Um áhuga...
Ţađ er svo merkilegt ađ allt sem hér er skrifađ af manni í fćđingarfríi er túlkađ á einhvern skrítinn hátt. (međ fćđingarfríi á ég viđ ađ ég er ađ nota sumarfríiđ mitt, ekki ţađ ađ ég álíti ţessa daga vera eitthvađ frí - best ađ taka ţetta fram áđur en allt fer í hnút hjá fólki sem vill setja grćna kallinn í pils)
Ég bloga um bókmenntir og Egill Helga les út úr ţví súrar samsćriskenningar. Guđmundur Magnússon gerir ţađ líka Ég notađi ensku tilvitnunina ţví ţađ var tilvitnun sem ég mundi frá ţví ađ hafa lesiđ Macbeth í amerískum "high school" fyrir mörgum árum. Frú Munther lét okkur leggja á minniđ kafla úr verkinu og skrifa ógnarlanga ritgerđ, svona 5 síđur eđa svo. Vinkona mín lagđi Lafđi Macbeth á minniđ ég tók fyrir ţennan kafla:
"She should have died hereafter;
There would have been a time for such a word.
Tomorrow, and tomorrow, and tomorrow,
Creeps in this petty pace from day to day,
To the last syllable of recorded time;
And all our yesterdays have lighted fools
The way to dusty death. Out, out, brief candle!
Life's but a walking shadow, a poor player
That struts and frets his hour upon the stage
And then is heard no more. It is a tale
Told by an idiot, full of sound and fury
Signifying nothing."
Mér fannst ţađ mikiđ afrek 17 ára ađ leggja ţetta á minniđ. Síđan ţá hefur skoska leikritiđ veriđ í uppáhaldi hjá mér eins og frú Munther var.
Ţađ sem ég skil ekki er ađ menn lesa orđ páruđ milli bleyjuskipta sem grunsamleg skilabođ.
Hvernig er ţađ, heldur einhver sem les ţessi orđ ađ ég beri ţau undir dómsmálaráđherra?
Ég sé ekki hvers vegna í ósköpunum Björn eigi ađ hafa einhvers konar málpípu enda hefur hann aldrei legiđ á skođunum sínum.
Ţađ hafi frekar veriđ ađ einhverjum álitsgjöfum finnist hann hafi fariđ offari í ađ lýsa skođunum sínum.
Ég man t.d. eftir fréttamanni sem hćtti ađ lesa vefsíđu vegna einhvers sem var ţar skrifađ átta árum áđur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)