Miðvikudagur, 5. júlí 2006
Súpubarinn sigrar
í keppninni um bestu hádegissúpuna.
Það verður að mæla með Súpubarnum á Esso stöðinni í Borgartúni. Ljómandi góðar súpur á góðu verði. Indversk karrsúpa með fersku kóríander, kókosflögum og skvettu af jógúrt er til fyrirmyndar.
Mæli með hádegissúpu eða renna við á leið heim úr vinnu og taka með lítra fyrir instant hollan kvöldmat.
Miðvikudagur, 5. júlí 2006
Pundit
Álitsgjafinn var í þætti Róberts Marshall, Pressan á sunnudag.
Við töluðum um betri réttarstöðu samkynhneigðra, skoðanakönnun vikunnar, þjóðaröryggi og skýrslu Dr. Bracke um hryðjuverkavarnir. Með mér voru Atli Gíslason, Einar Karl Haraldsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Ég er búinn að ræða við áhorfendurnar og öll fjögur voru sátt við frammistöðuna.
Mér fannst framlag Atla Gíslasonar vera nokkuð merkilegt þegar hann hélt því fram að árásirnar á WTC 11. sept. hefðu verið stríðinu í Afganistan að kenna! Það er ákveðinn tímalapsus í þessari kenningu eins og ég benti á í þættinum. Þá fannst mér vera ákveðinn söknuður í orðum talsmanns kvenfrelsis og jafnréttis yfir örlögum talibanastjórnarinnar.
Mánudagur, 26. júní 2006
wokbarinn winnur
prófuðum Wok-bar Nings í Hagkaupum í Kringlunni dag, algjör winner. Ferskt og gott hráefni sem gerir góðan mat. Nings á það til að vera ekki með ferskasta grænmetið, við höfum tvisvar hætt í miðjum klíðum þar vegna ellimerkja á paprikum, það var ekkert þannig á Wok barnum. Ljómandi gott allt saman.
Alveg til fyrirmyndar að gúffa í sig asískt á meðan maður horfir á leik á HM á netinu.
Það eru tvær þjónustur www.viidoo.com og www.sopcast.com á báðum þarf að ná í spilara og svo hafa vit á hvaða stöðvar maður velur. ESPN á þeirri fyrrnefndu og ESPN og MK sports á þeirri síðari. ég var bara að skoða sopcast í dag en það virkar mjög vel, jafnvel aðeins betur en fyrrnefnda, bara tvisvar eða þrisvar í öllum leiknum kom "lagg" sem er álika og digital Ísland skilar. Myndin er auðvitað ekki alveg jafn flott í "full screen" en þetta vs. 15 þús blóðkrónur til Draslbrúnar það er ekki spurning hvað maður velur.
Laugardagur, 17. júní 2006
Dagur grínar
Forsíða Blaðsins í dag er auðvitað bráðfyndin fyrir það hve óforskammaður Dagur BE er. Fyrirsögnin er:
Segir hættu á óafturkræfum skemmdum í hjarta borgarinnar
Þarna er Dagur BE að tala um mislæg gatnamót við Kringlumýri og er nógu óforskammaður að benda á delluna sem var gerð við Hringbraut og hann sat yfir. Gerið ekki eins og ég gerði heldur eins og ég segi. Það kemur svo lítið á óvart að það séu skilaboði frá Degi BE.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. júní 2006
Þegar menn eru klikkaðir...
þá lesa menn fundargerðir borgarstjórnar.
Það var margt áhugavert sem gerðist þennan fyrsta fund nýja meirihlutans. Eftir fundinn blés Dagur BE um að hallað sé á konur. Maðurinn sem felldi þriðju konuna í borgarstjórnarstólnum úr sæti sínu.
Það er eitt spaugilegt í ályktun Dags, hann segir:
Og svo verður það fróðlegt að sjá hvort að eina konan sem slapp inn í stjórn fyrirtækis, Þorbjörg Helga hjá Strætó, verði gerð að stjórnarformanni þess fyrirtækis. Meirihlutinn hefur fært jafnréttisbaráttuna aftur um áratugi.
En í upplýsingum um téða stjórn á vef Reykjavíkur segir:
Formennska skiptist milli aðildarsveitarfélaganna.
Fráfarandi formaður er Anna Kristinsdóttir fulltrúi borgarinnar, er þá ekki ljóst að stjórnarformennskan fari til annars sveitarfélags? Ætli að Dagur blási um ójafnrétti ef Guðmundur Rúnar Árnason verður stjórnarformaður? Guðmundur er nefnilega karlmaður úr Hafnarfirði og er fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Strætó bs.
Sjáum til.Bloggar | Breytt 15.6.2006 kl. 01:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)