920 ljósmyndir teknar úr grunni Reuters

Allar 920 ljósmyndir líbanska ljósmyndarans Adnan Hajj hafa verið teknar úr gagnagrunni Reuters eftir að upp komst að hann falsaði amk. tvær myndir teknar nýlega í Líbanon. 

Eftir að upp komst um fyrri föslunina gaf Hajj þá skýringu að hann hafi verið að hreinsa rykkorn úr myndinni við slæmar aðstæður og óvart fjöfaldað reykstróka. 

Það er erfitt að skilja tilganginn með þessu photoshop fúski. Hajj hefur verið orðinn svo sannfærður að hann þurfi að sýna aðgerðir Ísraelsmanna í versta mögulega ljósi að það er rökrétt afleiðing að efast um allt sem frá honum kom og í raun er erfitt að treysta ljósmyndum.

fyrri fölsun Hajj 

Hajj átti líka myndir frá Qana sem hafa verið gagnrýndar, ekki að það sé trú manna að þær séu falsaðar, frekar að þar sé verið að ráðskast með heimspressuna. Það má skoða samantekt hér

Maður hefði haldið að það sé nógu mikið í gangi þarna suðurfrá að menn þurfi ekki að grípa til svona bragða. 

 Eins og blogarinn að Bjórá 49 kommentaði á síðustu færslu:

Partur af stríði er gjarna baráttan um "hugi og hjörtu" heimsbyggðarinnar, þar eru og hafa verið notuð ýmis vopn

Það er verra þegar upplýsingalindin menguð. Hvar á að finna sannleikann? 


Lítið um leiðréttingar í íslenskum fjölmiðlum

Í morgun var sagt frá því víða að 40 líbanir að minnsta kosti féllu í loftárás á þorpið Hula í S-Líbanon (frétt mbl segir þorpið í S-Ísrael!) Það hefur mun minna farið fyrir leiðréttingu forsærisráðherra Líbanon þar sem tala fallina er lækkuð úr 40 í 1!

Það er mjög áberandi hvernig að fréttaflutningur íslenskra fjölmiðla er nánast algerlega einhliða.

Það hefur t.d. ekkert verið minnst á mál Adnan Hajj sem er líbanskur ljósmyndari sem vann fyrir Reuters þar til um helgina. Hajj breytti myndum sem birtust hjá Reuters. Hann bætti inn reyk á mynd til að láta hana líta ut fyrir að gefa mynd af meiri eyðileggingu. Til viðbótar hefur Reuters lýst yfir að Hajj hafi falsað aðra mynd. Þá hefur verið efast um fleiri myndir frá honum, sjá hér.

Ég er ekki að halda því fram að allar gjörðir Ísraela eru réttlætanlegar en það er óþolandi að þurfa alltaf að leita út fyrir landsteinanna í leit að fréttum sem eru ekki með hið einhliða sjónarhorn allt sem Ísrael gerir sé sprottið af illum hvötum. 


mbl.is Tugir látnir eftir loftárásir Ísraelsmanna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjarstjórinn í Bolungarvík

Eitthvað er Grímur Atlason orðinn stressaður vegna Morrissey tónleikanna fyrst hann er farinn að nota trikk eins og það að þeir sem kaupa miða á morrissey fái forgang á Sufjan Stevens.  Mér finnst það ótrúlegt ef illa gangi að selja miða á morrissey, ef ég væri ekki á leið í giftinga og veislu þá væri ég löngu búinn að kaupa miða. Rétt eins og Duran tónleikarnir voru reunion fyrir sítt að aftan liðið í Millet úlpunum þá sé ég Morrissey tónleikana sem bullandi reunion fyrir alla þá sem mættu á tónleika í Norðurkjallaranum í MH og Skálholti í MS eða Duus í Fischersundi á árunum 88-90. Hljómsveitir eins og E-X og hvað sem þær allar hétu, allar þessar efnilegu hljómsveitir. 

Sufjan Stevens finnst mér leiðinlegur þannig að það gimmik virkar ekki á mig, ef þannig stæði á að ég kæmist. Tónlistin er of hrein og átakalítil. Þetta verða örugglega voða fínir tónleikar í Fríkirkjunni í nóvember. Meira spennandi er Kaiser Chiefs á Airwaives eða ef einhver vildi flytja inn bandið sem er með besta disk dagsins í dag, Muse. Það væri gaman.

 


mbl.is Fyrirkomulagi Morrissey-tónleika í Laugardalshöllinni breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Senator Oklahoma og ég

Fyrirsögnin gæti verið samin af Ellert Schran, en tilefnið er blogg Freedomfries um Tom Coburn þar sem minnst er á undirritaðan.

Freedomfries er blogg sem ég reyni að lesa reglulega, þar sem fjallað er á öfgalausan hátt um bandarísk stjórnmál. Þar er ekki dottið í þann leiða pott að stilla öllu upp eins og um fótboltalið sé að ræða, demókratar góðir, repúblikanar vondir eða öfugt. Mogginn er með verstu sökudólgunum í þessari umfjöllunarhefð, já og spekingar Egils Helgasonar sem stundum koma af ritstjórn Morgunblaðsins.  Það er stundum þannig þegar fjallað er um bandarísk stjórnmál af ritstjórn moggans að vanþekkingin og fordómarnir verða hrópandi.  Staksteinar fyrir tíu dögum eru ágætt dæmi:

hvergi eru samskipti fólks jafn yfirborðsleg og innihaldslaus og einmitt í Bandaríkjunum.

Leiðari Moggans 20. maí 2006 þar sem því var haldið fram að full ástæða væri til að óttast um öryggi Hillary Clinton vegna óvinsælda hennar hjá hægri mönnum, er annað tilvik.

Ég er ekki sammála öllu því sem kartöflubóndinn segir en þar er talað af þekkingu um bandarísk stjórnmál, nokkuð sem ritstjórn blaðs allra landsmanna tekst furðu oft að sneiða hjá. 


Ég fullyrði að ég er ekki á leið í framboð

Fullyrðing núverandi formanns Samfylkingarinnar á kosninganótt 2002 um að hún væri ekki á leið í framboð er milljóna virði. Það er sjaldan sem stjórnmálamaður er nappaður svona skemmtilega.

Það er ágætt að muna þetta þegar trúverðugleiki og orðheldni formanns Samfylkingarinnar verður til umræðu á koamndi vetri.

Hlusta hér á framboðsyfirlýsinguna


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband