Yndisleg Ást

Lokakvöldinu okkar á landinu eyddum viđ á frumsýningu söngleiksins Ást og hvílík snilld. Ég hef ekki veriđ eins upprifinn af leiksýningu, bíó eđa nokkru viđlíka í langan tíma. Ţetta stykki er ofbođslega skemmtilegt, salurinn hló, grét og söng. Ţetta er ekki djúpt leikrit en ţađ er bara svo skemmtilegt. Leikararnir eru auđvitađ klassík Magnús Ólafsson, Kristbjörg og Hanna María Karsldóttir voru öll frábćr. Theódór Júlíusson var stórskemmtilegur og Ómar var frábćr allt ţar til undir lokin. Tónlistin er dćgurlög frá öllum tímum íslensk og erlend, allt frá Stones, til Megasar, frá Bubba til Verve til ţess ađ ađ heyra Skapta Ólafsson syngja Allt á floti allstađar.

Fyrir mér var hápuntkurinn ţegar Theódór söng Verve lagiđ The Drugs Don't Work, lag sem ég hlustađi á ca. 600 sinnum sumariđ og haustiđ 1997. 70% gesta var ađ heyra lagiđ í fyrsta skipti ţannig ađ ég held ađ ađrir eigi sér sitt móment. Viđ skemmtum okkur konunglega, ţetta er sćtt, sorlegt og skemmtileg leikverk og ég hef satt ađ segja ekki eytt 2 tímum betur um langa hríđ.

á morgun sunnudag hefst svo ferđalagiđ... 

 


Heyrst hefur...

nöldurhorn Blađsins hefur átt nokkra "góđa" spretti undanfariđ. Fyrr í vikunni var ţví haldiđ fram ađ Skallagrímur ţyrti ađ reka Sóley Tómasdóttur úr VG vegna frammistöđu hennar í Silfrinu sl.sunnudag eđa gefast upp á feminisimanum.

í morgun trúir dálkurinn ţví ađ ţađ veki eftirtekt ađ ekki er bođiđ upp á neitt asískt tungumál á vefsvćđinu www.island.is ţví hér á landi munu búa um 1300 manns frá Taílandi og Filippseyjum.   Af hverju ţađ eigi ađ vekja eftirtekt ađ er ekki auđskiliđ ţví eins og allir vita ţá enska er annađ opinberra tungumála Filppseyja. Ţar fyrir utan ţá er nett kynţáttahyggja í ţessu nöldri Blađisins. Ţađ spyr af hverju er ekki bođiđ upp á asískt tungumál fyrir asíubúana og nefnir svo tvö lönd hvers tungumál eru all óskyld. Ţetta er eins og einhver myndi segja af hverju er ekki bođiđ upp á evrópskt mál fyrir evrópubúana, ţađ eru svo margir Íslendingar og Ungverjar á svćđinu!

 


Borgaralandiđ kallar

hardeesMeginţorri búslóđarinnar er kominn á hafnarbakkann, ţađ sem fylgir út. Merkilegt ađ sjá flest allar veraldlegar eigur á 3 brettum vafđar í plast. Borgaralandiđ kallar á sunnudag.

Sly á hug minn núna á međan beđiđ er eftir brottför.

You see it's in the blood
Both kids are good to Mom
'Blood's thicker than mud'
It's a family affair, it's a family affair

Annars er gott ađ sjá ađ Vaka ćtlar ađ ná vopnum sínum. 


Er ađ flytja

Raunheimaflutningar standa yfir ţessa dagana og ţví verđur líklega lítiđ blogađ. Sjáum hvort blogbakterían taki ekki viđ sér ţegar veraldlegar eignir eru komnar á hafnarbakkann.

Hasta pronto 


Til hamingju Ísland!

Ţú ert skrefi nćr frelsinu.

1. mars er góđur dagur. 1989 fengum viđ bjórinn, 2007 urđu skattar á mat og nokkrar ađrar vörur eđlilegir. Viđ ćttum ađ gera daginn ađ frídegi og kalla hann frelsisdaginn. Stjórnmálamenn yrđu skuldbundnir til ađ fćra almenningi nýtt frelsi árlega.

Nú ţarf ađ láta kné fylgja kviđi og halda áfram međ skattalćkkanir, láta víniđ fylgja og taka ţví bara ađ ríkissjóđur verđi af tekjum. Einu sinni var hćgt ađ hćkka áfengisskatta, fara gegnum 3 umrćđur í ţingi og birta lagabreytinguna  stjórnartíđindum allt á 5 klukkustundum.  Ţađ hlýtur ađ vera hćgt ađ lćkka virđisauka á áfengi á skemmri tíma. Ég mana ţig Árni!

Dagurinn í dag er merkilegur ţví núna erum viđ skattgreiđendur ađ fá eitthvađ tilbaka. Ţessi ríkisstjórn sem nú situr er ein merkilegasta sem setiđ hefur ţví hún er sú eina sem lćkkađ hefur álögur á almenning. Ţótt varaformađur Samflykingarinnar segi eitt og annađ af viti endrum og eins ţá er Samfylkingunni sem flokki ekki treystandi ţví formađurinn er bara gamaldags kommi sem finnst samkeppni almennt til ama.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband